Adolfo Pérez Esquivel | |
---|---|
Fæddur | 26. nóvember 1931 |
Þjóðerni | Argentínskur |
Menntun | Þjóðarháskólinn í La Plata |
Störf | Listmálari, aðgerðasinni |
Trú | Kaþólskur |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (1980) |
Undirskrift | |
Adolfo Pérez Esquivel (f. 26. nóvember 1931) er argentínskur aðgerðasinni, listmálari, myndhöggvari og rithöfundur sem vann árið 1980 til friðarverðlauna Nóbels fyrir andspyrnu sína gegn herforingjastjórn Argentínu á tíma skítuga stríðsins. Á þeim tíma var Pérez Esquivel pyntaður og honum haldið í fangelsi í átján mánuði án gildrar handtökuskipunar.
Pérez Esquivel fæddist í Búenos Aíres. Faðir hans var spænskur sjómaður sem hafði flust til Argentínu frá Poio í Galisíu. Móðir hans lést þegar hann var þriggja ára. Pérez Esquivel gekk þrátt fyrir mikla fátækt í Manuel Belgrano-listaskólann og síðan í Þjóðarháskólann í La Plata, þar sem hann nam listmálun og höggmyndalist. Hann var útnefndur prófessor í byggingarlist og kenndi í 25 ár á öllum námsstigum frá grunnskóla til háskóla, auk þess sem hann vann við höggmyndalist á ýmsum vettvangum. Á sjöunda áratugnum byrjaði Pérez Esquivel að starfa með kristnum friðarhreyfingum sem voru þá vinsælar í Rómönsku Ameríku. Hann sagði upp kennarastarfi sínu árið 1974 eftir að hann var valinn umsjónarmaður félagasamtaka sem töluðu fyrir friðsamlegri frelsun hinna fátæku í samræmi við frelsunarguðfræði.
Þegar skipulegar ríkisofsóknir hófust í kjölfar valdaráns hershöfðingjans Jorge Rafael Videla í mars 1976 tók Pérez Esquivel þátt í stofnun og fjármögnun samtaka til að verja mannréttindi í Argentínu og til að aðstoða fjölskyldur fórnarlamba skítuga stríðsins. Frjálsu félagasamtökin Servicio Paz y Justicia (ísl. „Frelsi, friður og réttlæti“ eða SERPAJ), sem hann stofnaði árið 1974, stóðu fyrir alþjóðlegri herferð fyrir fordæmingu á glæpum argentínsku herforingjastjórnarinnar.
Brasilíska herlögreglan handtók Pérez Esquivel árið 1975. Hann var settur í fangelsi í Ekvador næsta ár ásamt rómansk-amerískum og norður-amerískum biskupum. Hann var handtekinn í Búenos Aíres árið 1977, pyntaður og honum haldið í fangavist í 14 mánuði. Á þeim tíma hlaut hann meðal annars friðarverðlaun Jóhannesar 23. páfa.
Þann 10. desember 1980 hlaut Pérez Esquivel friðarverðlaun Nóbels fyrir mannréttindabaráttu sína í Argentínu. Hann hafði verið tilnefndur af friðarverðlaunahöfunum Mairead Corrigan og Betty Williams. Hann þáði verðlaunin „í nafni fátækustu og minnstu bræðra minna og systra“ og gaf verðlaunaféð til líknarmála. Hann var áfram virkur stuðningsmaður mæðra Maítorgsins þrátt fyrir að sæta áframhaldandi ofsóknum herforingjastjórnarinnar. Hann gekk síðar í hreyfingar til stuðnings frumbyggjaréttindum, náttúruvernd og til að mótmæla efnahagslegum aðhaldsaðgerðum Fríverslunarsvæðis Ameríkuríkja.
Pérez Esquivel hlaut Pacem in Terris-verðlaunin árið 1999. Árið 1995 gaf hann út bókina Caminando Junto al Pueblo, þar sem hann fjallaði um reynslu sína af friðarhreyfingum í Rómönsku Ameríku. Hann var útnefndur prófessor í friðar- og mannréttindafræðum við Háskólann í Búenos Aíres árið 1998. Árið 2010 tók hann þátt í mótmælaherferð gegn hugmyndum um að lögreglan í Esquel þjálfaði börn í sérstakar varnarsveitir, sem Pérez Esquivel líkti við Hitlersæskuna í Þýskalandi nasismans.
Pérez Esquivel var á móti inngripi Evrópuríkja í líbísku borgarastyrjöldina árið 2011 og varaði gegn inngripi í sýrlensku borgarastyrjöldina. Eftir dauða Osama bin Laden sendi Pérez Esquival Barack Obama Bandaríkjaforseta bréf þar sem hann gaf í skyn að Bandaríkjamenn hefðu drepið bin Laden í stað þess að draga hann fyrir rétt af ótta við að hann byggi yfir óþægilegum upplýsingum um hryðjuverkin 11. september 2001. Pérez Esquival hélt því fram að Bandaríkjastjórn stæði mögulega sjálf á bak við árásina og að hún hefði verið „fullkomin afsökun til að lýsa yfir stríði gegn Afganistan og Írak og nú gegn Líbíu“. Hann kallaði Bandaríkin jafnframt „öxulveldi hins illa“.
Þegar Jorge Bergoglio, erkibiskup af Búenos Aíres, var kjörinn páfi rómversk-kaþólsku kirkjunnar undir nafninu Frans þann 13. mars 2013 lagði Pérez Esquivel orð í belg og sagði að sem yfirmaður Jesúítareglunnar í Argentínu hefði Bergoglio „skort hugrekkið sem aðrir biskupar sýndu með því að styðja mannréttindabaráttu okkar á tíma einræðisstjórnarinnar“. Pérez Esquivel sagði þó einnig að Bergoglio hefði „gert það sem hann gat miðað við aldur sinn á þeim tíma“. Hann tók jafnframt fram að Bergoglio hefði aldrei verið bandamaður eða samstarfsmaður einræðisstjórnarinnar og bætti við: „Þótt margir segi að hann hafi ekki gert nóg til að fá tvo presta látna lausa úr fangelsi veit ég persónulega að margir aðrir biskupar biðluðu til herforingjastjórnarinnar um frelsi þeirra og að þeim var synjað“.
Í júní árið 2017 kom Pérez Esquivel ríkisstjórn Nicolásar Maduro í Venesúela til varnar og sagði að Bandaríkin væru að reyna að fremja „valdarán“ í landinu.
Meðal listaverka Pérez Esquivels má nefna innsetningar, veggmyndir og minnisvarða, þar á meðal veggmyndina Via Crucis Latinoamericano y Paño Cuaresma sem gerð var árið 1992 til að minnast 500 ára afmæli landtöku Evrópumanna í Ameríku. Pérez Esquivel hefur einnig gert minnisvarða fyrir flóttamenn sem stendur í höfuðstöðvum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Sviss, veggmynd af þjóðum Rómönsku Ameríku í dómkirkjunni í Riobamba í Ekvador og bronsstyttu til heiðurs Mahatma Gandhi á Gandhi-torgi í Barselóna.