| ||||
Albert 2.
| ||||
Ríkisár | 31. júlí 1993 – 21. júlí 2013 | |||
Skírnarnafn | Albert Felix Humbert Theodoor Christiaan Eugène Marie (á flæmsku), Albert Félix Humbert Théodore Chrétien Eugéne Marie (á frönsku) | |||
Fæddur | 6. júní 1934 | |||
Brussel, Belgíu | ||||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Leópold 3. Belgíukonungur | |||
Móðir | Ástríður Belgíudrottning | |||
Drottning | Donna Paola Ruffo di Calabria | |||
Börn | 4 |
Albert II (Albert Félix Humbert Théodore Chrétien Eugéne Marie) (f. 6. júní 1934) var konungur Belgíu frá 9. ágúst 1993 til 21. júlí 2013. Hann er yngri sonur Leópolds III konungs og Ástríðar prinsessu af Svíþjóð. Hann tók við konungsveldinu af bróður sínum Baldvin sem lést árið 1993 og hélt þeirri stöðu fram að uppsögn hans 21. júlí 2013.
Árið 2019 skipaði belgískur dómstóll Alberti að ganga undir faðernispróf til að ganga úr skugga hvort hann hafi feðrað dóttur í lausaleik á sjöunda áratugnum. Móðir meintrar dóttur, barónessan Sybille de Selys Longchamps, sagðist hafa átt í tveggja áratuga löngu leynilegu ástarsambandi við Albert. Albert neitaði í fyrstu að fara að skipun dómsins og leitaði sér lögfræðiaðstoðar til að láta áfrýja dómnum en féllst á að gefa lífsýni í lok maí sama ár.
Niðurstaða erfðaprófsins var gerð opinber í janúar 2020. Hún staðfesti að Albert væri barnsfaðir barónessunnar. Dóttir þeirra er belgíski myndhöggvarinn Delphine Boël.
Delphine hlaut rétt til að bera titil prinsessu og að bera aðalsættarnafnið Saxe-Cobourg-Gotha eftir dómsúrskurð í september 2020.
Þann 2. júlí 1959 giftist Albert ítalskri konu að nafni Dona Paola Ruffo di Calabria, sem hefur síðan 1993 verið þekkt sem Pála Belgíudrotting. Börn þeirra eru:
Albert á eina dóttur utan hjónabands:
Fyrirrennari: Baldvin |
|
Eftirmaður: Filippus |