Gyrðir Elíasson 2011 Ljósmynd Hreinn Gudlaugsson
Gyrðir Elíasson (fæddur 4. apríl 1961 ) er íslenskur rithöfundur , ljóðskáld og þýðandi . Gyrðir hefur hlotið ýmsar viðurkennningar, og þar á meðal bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011 fyrir bók sína, Milli trjánna .
Hann er austfirðingur að uppruna en ólst upp á Sauðárkróki . Faðir hans, Elías B. Halldórsson , var myndlistarmaður , og einnig báðir bræður hans, Sigurlaugur Elíasson og Nökkvi Elíasson .
Gyrðir gaf út fyrstu ljóðabók sína, Svarthvít axlabönd , árið 1983 og fyrsta skáldsagan , Gangandi íkorni , kom út 1987. Gyrðir þykir góður stílisti og eru bækur hans mjög ljóðrænar. Útgáfa ljóðaþýðinganna „Flautuleikur álengdar“, sem út komu árið 2008 hjá Uppheimum, markaði tuttugu og fimm ára rithöfundarafmæli hans. Gyrðir býr í Reykjavík . Hann er kvæntur og á þrjú börn.
Verk
Ljóð
Svarthvít axlabönd , 1983
Tvíbreitt (svig)rúm eða Póesíbók númer eitt komma tvö , 1984
Bak við maríuglerið , 1985
Einskonar höfuð lausn , 1985
Blindfugl/Svartflug , 1986
Haugrof , 1987
Tvö tungl , 1989
Vetraráform um sumarferðalag , 1991
Mold í skuggadal , 1992
Indíánasumar , 1996
Hugarfjallið , 1999
Tvífundnaland , 2003
Upplitað myrkur , 2005
Nokkur almenn orð um kulnun sólar , 2009
Nokkur ljóð , 2012
Hér vex enginn sítrónuviður , 2012
Ljóðaúrval 1983–2012 , 2015
Síðasta vegabréfið , 2016
Smáprósar
Smásögur
Bréfbátarigningin , 1988
Heykvísl og gúmmískór , 1991
Tregahornið , 1993
Kvöld í ljósturninum , 1995
Vatnsfólkið , 1997
Trésmíði í eilífðinni og fleiri sögur , 1998
Gula húsið , 2000
Steintré , 2005
Milli trjánna , 2009
Koparakur , 2014
Skuggaskip , 2019
Skáldsögur
Þýðingar
Richard Brautigan : Svo berist ekki burt með vindum , 1989
Richard Brautigan: Silungsveiði í Ameríku , 1992
Forrest Carter : Uppvöxtur Litla trés , 1999, kilja: 2000
Richard Brautigan: Vatnsmelónusykur , 1991
Jim Heynen : Litla skólahúsið , 1995
Velma Wallis : Tvær gamlar konur , 1995
Velma Wallis: Fuglastúlka og maðurinn sem elti sólina , 1997
William Saroyan : Ég heiti Aram , 1997
Ýmsir: Að snúa aftur – ljóðaþýðingar , 2000
Anwar Accawi : Drengurinn í Mánaturni , 2001
Jay Parini : Endastöðin: Síðasta æviár Tolstojs , 2002
Isaac Bashevis Singer : Sögumaðurinn Naftalí og hesturinn hans , 2003
William Saroyan: Geðbilun í ættinni og aðrar sögur , 2004
Natalie Babbitt : Fólkið sem gat ekki dáið , 2005
Richard Brautigan: Ógæfusama konan: ferðalag , 2006
Ýmsir: Flautuleikur álengdar – ljóðaþýðingar , 2008
Ýmsir: Tunglið braust inn í húsið – ljóðaþýðingar , 2011
Shuntarō Tanikawa : Listin að vera einn – ljóðaþýðingar , 2014
Shirley Jackson : Líf á meðal villimanna , 2015 – skáldsaga
Ko Un : Sorgin í fyrstu persónu – ljóð , 2017
Ýmsir: Birtan yfir ánni – ljóðaþýðingar , 2017
Gallerí
Ljósmyndir: Hreinn Gudlaugsson
Gyrðir í heimsókn í Árósum (2011)
Tengt efni
Tenglar