Hinsegin er regnhlífarhugtak yfir ýmsa minnihlutahópa hvað varðar kynhneigð, kynferði og kyneinkenni. Orðið nær þá m.a. yfir samkynhneigða, tvíkynhneigða, eikynhneigða, trans fólk og intersex fólk.
Orðið hefur verið notað í þessari merkingu síðan um það bil árið 2000. Q - Félag hinsegin stúdenta var fyrsta félagið til þess að opinberlega taka orðið hinseign inn í nafnið sitt, en það bar áður heitið Félag samkynhneigðra stúdenta, FSS. Samtökin '78 fylgdu fljótt á eftir og var undirskrift félagsins breytt úr Félag lesbía og homma á Íslandi í Félag hinsegin fólks á Íslandi.
Áður fyrr hafði orðið stundum verið notað um hinsegin fólk (einkum samkynhneigða) í niðrandi tilgangi og vísaði þá til þess að viðkomandi væri öðruvísi.