José Mourinho

José Mourinho
Upplýsingar
Fullt nafn José Mário dos Santos Mourinho Félix
Fæðingardagur 26. janúar 1963 (1963-01-26)
Fæðingarstaður    Setúbal, Portúgal
Hæð 1,75 m
Leikstaða Miðjumaður
Meistaraflokksferill1
Ár Lið Leikir (mörk)
1980-1982 Rio Ave 16 (2)
1982-1983 Belenenses 16(2)
1983-1985 Sesimbra 35 (1)
1985-1987 Comércio e Indústria 27 (8)
Þjálfaraferill
2000
2001–2002
2002–2004
2004-2007
2008-2010
2010-2013
2013-2015
2016-2018
2019-2021
2021-2024
Benfica
União de Leiria
FC Porto
Chelsea FC
Inter Milan
Real Madrid
Chelsea FC
Manchester United
Tottenham Hotspur
AS Roma

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins.

José Mário dos Santos Félix Mourinho (fæddur 26. janúar 1963 í bænum Setúbal í Portúgal) er portúgalskur knattspyrnustjóri og fyrrum leikmaður.

Ferill sem knattspyrnustjóri

Jose Mourinho hefur stjórnað þremur portúgölskum liðum (Benfica, U.D. Leiria, og F.C Porto) og gerði Porto annars að sigurvegurum í Meistaradeild Evrópu árið 2004, þegar liðið vann Monaco frá Frakklandi 3-0 í úrslitaleik.

Því næst fór hann til Englands að þjálfa Chelsea FC frá London. Mourinho gerði þá að tvöföldum Englandsmeisturum tímabilin 2004-2005 og 2005-2006. Hann var látinn fara eftir tímabilið 2006-2007 þó að félagið hafi náð öðru sæti.

Sumarið 2008 tók Mourinho við Internazionale frá Ítalíu. Vann hann með Inter þrennuna (ítölsku deildina, ítalska bikarinn og meistaradeildina) árið 2010.

Árið 2013 skrifaði hann undir hjá Real Madrid og dvaldi þar til 2015. Hann vann La Liga tímabilið 2011-2012 og tvo bikara á tíma sínum með Real.

Mourinho hélt aftur til Chelsea og gerði þá að meisturum tímabilið 2014-2015. Næsta tímabil var gegni liðsins slakt þegar það hafði tapað 9 af 16 leikjum fyrir jól sem varð til þess að Mourinho var sagt upp.

Árið 2016 samdi Mourinho við Manchester United í 3 ár. Hann vann Evrópudeildina, Góðgerðaskjöldinn og EFL-bikarinn með félaginu. Aftur á móti var honum sagt upp líkt og síðast hjá Chelsea rétt fyrir jól árið 2018 eftir slakt gengi United.

Í nóvember 2019 var hann skipaður stjóri Tottenham Hotspur. Honum var sagt upp störfum í lok tímabils 2020-21 þegar liðið var í 7. sæti Premier League.

Hann gerðist stjóri A. S. Roma tímabilið 2021-2022. Árið 2022 vann hann Sambandsdeild Evrópu með liðinu. Hann var rekinn í janúar 2024 eftir slakt gengi.

Titlar sem knattspyrnustjóri

  • Með Real Madrid
    • La Liga 2011-2012
    • Copa del Rey: 2010–11
    • Supercopa de España: 2012
  • Með Manchester United
    • EFL Cup: 2016–17
    • FA Community Shield: 2016
    • UEFA Europa League: 2016–17
  • Með AS Roma
    • Sambandsdeild Evrópu: 2021-2022