Loreen | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | Lorine Zineb Nora Talhaoui 16. október 1983 Stokkhólmur, Svíþjóð |
Önnur nöfn | Loreen |
Uppruni | Västerås, Svíþjóð |
Störf |
|
Ár virk | 2004–í dag |
Stefnur | Danspopp |
Hljóðfæri | Rödd |
Útgefandi | |
Vefsíða | loreenofficial |
Lorine Zineb Nora Talhaoui (f. 16. október 1983), betur þekkt undir sviðsnafninu Loreen, er sænsk söngkona. Hún vann Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2012 með laginu „Euphoria“ og Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2023 með laginu „Tattoo“. Loreen er eina konan sem hefur unnið keppnina tvisvar.
Loreen fæddist í Stokkhólmi en flutti stuttu síðar til Västerås þar sem hún gekk í skóla. Foreldrar Loreen eru Berbar frá Marokkó. Árið 2004 tók hún þátt í sænska Idol og endaði í 4. sæti. Árið 2011 keppti hún í Melodifestivalen (undankeppni Svíþjóðar fyrir Eurovision) með lagið „My Heart Is Refusing Me“ og lenti í 4. sæti. Árið eftir tók hún aftur þátt í keppninni með lagið „Euphoria“ og var valin sem framlag Svíþjóðar í Eurovision 2012 sem var haldin í Bakú, Aserbaísjan. Þar sigraði hún með yfirburðum og fékk stig frá öllum þátttökulöndunum nema Ítalíu. Loreen hlaut 372 stig og náði næstum að slá þáverandi stigamet Alexanders Rybak. „Euphoria“ komst á marga topplista víða um Evrópu og hefur notið mikilla vinsælda síðan. Eftir sigurinn hefur Loreen tekið tvisvar þátt í Melodifestivalen, árið 2017 með „Statements“ og árið 2023 með „Tattoo“.