Oddeyrarskóli er grunnskóli, staðsettur við Víðivelli, Oddeyri á Akureyri. Þar eru um 170 nemendur. Skólinn tók til starfa 1957.
Árið 2021 voru 171 nemendur í 1.—10. bekk við Oddeyrarskóla. Það ár voru 41.9 stöðugildi starfsmanna við skólann, þar af um 27 kennarar.
Bygging Oddeyrarskólans hófst árið 1955 og tók hann til starfa haustið 1957. Í fyrsta áfanga skólans voru byggðar fjórar kennslustofur og kennarastofa, þar sem einnig var kennt, auk skrifstofu skólastjóra. Fyrstu árin var skólinn þrísetinn með alls 237 nemendum og sóttu þeir skólann á mismunandi tíma dagsins.
Nokkrum árum síðar voru byggðar við vesturenda skólans þrjár hæðir sem teknar voru í notkun um og eftir 1962. Flestir urðu nemendur skólans tæplega 500 á árunum kringum 1970. Íþróttahús var síðan byggt við skólann 1994 og um aldamótin 2000 var byggð sérstök starfsmannaálma auk nýrra kennslustofa norðan elsta hluta skólans.
Oddeyrarskóli er á Víðivöllum á Oddeyri Akureyrar. Í sveitarfélaginu eru grunnskólarnir ekki hverfaskiptir nema að því leyti að hvert barn á rétt til skólagöngu í sínum hverfisskóla.
Skólastjóri Oddeyrarskóla (2023) er Anna Bergrós Arnarsdóttir. Aðrir stjórnendur eru þær Fjóla Kristín Helgadóttir, deildarstjóri eldri deildar skólans og og staðgengill skólastjóra; Margrét Th. Aðalgeirsdóttir, deildarstjóri yngri deildar; og Sigrún Gunnarsdóttir, umsjónarmaður frístundar.
Oddeyrarskóli býður nám í 1.—10. bekk. Þar er lögð áhersla á samvinnu til að skapa árangursríkt skólasamfélag sem einkennist af jákvæðum skólabrag, áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta.
Menntamálastofnun vann svokallað ytra mat á skólastarfi Oddeyrarskóla í október 2015. Þar segir „Sérstaða skólans felst í því hvernig unnið er í skóla án aðgreiningar og samskipti í skólasamfélaginu einkennast af jákvæðni og virðingu í samræmi við einkunnarorð hans og áherslur.“
Líkt og í mörgum öðrum grunnskólum hefur Oddeyrarskóli í áraraðir unnið eftir hugmyndafræði svokallaðrar SMT skólafærni sem gengur út á jákvæðan stuðning við hegðun nemenda. Markmiðið er að skapa jákvæðan skólabrag og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
Á vef skólans segir:
„Jákvæður skólabragur byggist á virðingu fyrir öllum einstaklingum og umhverfi þar sem margbreytileika skólasamfélagsins er fagnað. Hver og einn er meðvitaður um gildi sitt í samfélaginu og axlar ábyrgð á hlutverki sínu.“