Pírataflokkur

Merki Pirate Party

Pírataflokkur (stundum nefndur sjóræningjaflokkur) er heiti sem stjórnmálahreyfingar hafa tekið upp í nokkrum löndum. Pírataflokkar eiga það sameiginlegt að styðja borgaraleg réttindi, beint lýðræði, umbætur á höfundarréttar- og einkaleyfa lögum, frjálsa miðlun þekkingar (opið efni), friðhelgi einkalífs, gagnsæi og frelsi upplýsinga, ókeypis menntun, alþjóðlega heilsugæslu og skýr skil á milli ríkis og kirkju. Þeir aðhyllast nethlutleysi og alhliða, ótakmarkaðan aðgang allra að Internetinu sem nauðsynleg skilyrði þess.

Upphafið

Fyrsti Pírataflokkurinn var hið sænska Piratpartiet, stofnað þann 1. janúar 2006 undir forystu Rickard Falkvinge. Nafnið kom frá Piratbyrån, sænskum samtökum sem voru á móti höfundarrétti en meðlimir Piratbyrån höfðu áður stofnað BitTorrent vefinn The Pirate Bay Geymt 23 desember 2012 í Wayback Machine. Piratbyrån var sænsk útgáfa af danska félaginu PiratGruppen, sem stofnað var sem andsvar við AntiPiratGruppen sem barðist fyrir hertum lögum um hugverkaþjófnað. Fjölmiðlar og kvikmynda- og tónlistariðnaðurinn tóku upp nafnið „pirat“ (sjóræningi) frá þessum fyrstu samtökum.

Íslensk samtök

Þann 24. nóvember 2012 var formlega stofnaður Pírataflokkur á Íslandi undir nafninu Píratar. Á stofnfundinum voru samþykkt drög að lögum fyrir flokkinn og þar ákveðið að nafn hans skyldi vera Píratar (hjánefni Pirate Party Iceland). Flokkurinn bauð fram í Alþingiskosningum 2013 undir listabókstafnum Þ og hlaut þrjú þingsæti.

Tilvísanir

  1. „Píratapartýið“. Píratapartýið. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. júlí 2012. Sótt 26. júlí 2012.
  2. „Píratar halda stofnfund“. mbl.is. Sótt 25. nóvember 2012.
  3. „Stofnfundur“. Píratapartýið. Sótt 25. nóvember 2012.
  4. „Lög/drög“. Píratapartíið]. Sótt 13. janúar 2013.
  5. „Píratar fá Þ“. mbl.is . 20. febrúar 2013, .

Heimildir

Tengill

  Þessi stjórnmálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.