Risalífviður | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Gamalt tré í Vancouver
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Thuja plicata Donn ex D.Don | ||||||||||||||
Útbreiðsla risalífviðs
|
Risalífviður (fræðiheiti: Thuja plicata) er sígrænt tré af sýprisætt (Cupressaceae) sem ættað er úr vesturhluta Norður-Ameríku, er það finnst aðallega við Kyrrahafsströnd Bresku Kólumbíu í Kanada og Washington-fylki og Oregon-fylki Bandaríkjanna. Trén verða allt að 70 m há og yfir 800 ára. Tegundin er skuggþolin og þrífst í rökum eða blautum jarðvegi. Risalífviður er einstofna, beinvaxið tré með keilulaga krónu.
Risalífviður hefur t.d. verið ræktaður við Jökullæk í Hallormsstaðaskógi og Lystigarði Akureyrar. Risalífviður þarf algjört skjól undir skermi annarra trjáa í æsku og vex hægt til að byrja með.