Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2018 | |
---|---|
All Aboard! | |
Dagsetningar | |
Undanúrslit 1 | 8. maí 2018 |
Undanúrslit 2 | 10. maí 2018 |
Úrslit | 12. maí 2018 |
Umsjón | |
Vettvangur | Lisbon Arena Lissabon, Portúgal |
Kynnar |
|
Framkvæmdastjóri | Jon Ola Sand |
Sjónvarpsstöð | Rádio e Televisão de Portugal (RTP) |
Vefsíða | eurovision |
Þátttakendur | |
Fjöldi þátttakenda | 43 |
Frumraun landa | Engin |
Endurkomur landa | Rússland |
Taka ekki þátt | Engin |
Kosning | |
Kosningakerfi | Hvert land gefur tvö sett af 12, 10, 8–1 stigum til tíu laga. |
Sigurlag | Ísrael „Toy“ |
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2018 var haldin í Lissabon í Portúgal eftir að Salvador Sobral vann keppnina 2017 með lagið „Amar pelos dois“. Undankeppnirnar tvær voru haldnar 8. og 10. maí, og aðalkeppnin var haldin 12. maí. 43 lönd tóku þátt í keppninni, þar sem Rússland sneri aftur. Bosnía og Hersegóvína tók ekki þátt í þessari keppni, en það er í annað skiptið í röð.
Sigurvegarinn var Ísrael með lagið „Toy“, sem var flutt af Netta. Þetta var fjórði sigur Ísraels, eftir sigur þeirra 1978, 1979 og 1998. Í fyrsta skptið síðan að undanúrslit voru kynnt 2004, komust Aserbaísjan, Rúmenía og Rússland ekki í úrslit. Einnig náði ekkert Kákasus ríkjanna í úrslit, sem hefur ekki gerst síðan 2005.