Tvívetni (tákn 2H eða D) einnig kallað þungt vetni eða þungavetni er stöðug samsæta af vetni (H) sem hefur eina rafeind og eina róteind og eina nifteind í kjarnanum og hefur massatöluna 2 þar sem massatala er samanlagður fjöldi róteinda og nifteinda í kjarnanum og er nær tvöfalt þyngra en venjulegt vetni.
Tvívetni er næstalgengasta samsæta vetnis en um 0,022% af öllu vetni er tvívetni, algegnasta gerð vetnis er hins vegar einvetni (1H) sem hefur enga nifteind- aðeins eina rafeind og eina róteind. Þriðja algengasta tegund vetnis er svo geislavirka samsætan þrívetni (3H eða T) sem hefur eina rafeind, eina róteind og tvær nifteindir.