Týr | |
---|---|
Upplýsingar | |
Uppruni | Kaupmannahöfn, Danmörku |
Ár | Janúar 1998 – í dag |
Stefnur | Þungarokk, þjóðlagaþungarokk, framsækið þungarokk |
Útgefandi | Napalm Records |
Meðlimir | Heri Joensen Attila Vörös Gunnar H. Thomsen Tadeusz Rieckmann |
Fyrri meðlimir | Pól Arni Holm Allan Streymoy Jón Joensen Ottó P. Arnarson Kári Streymoy Terji Skibenæs |
Týr er þungarokkshljómsveit frá Færeyjum. Hún var stofnuð í janúar 1998 af Færeyingum sem bjuggu í Kaupmannahöfn. Þeir skrifuðu undir samning við austurríska plötuútgáfuna Napalm Records 2006. Hljómsveitin tók þátt í þýsku rokktónlistarhátíðinni Ragnarök 2007 og 2009. og hefur spilað á mörgum þungarokkshátíðum síðan.
Týr hefur spilað á Íslandi nokkrum sinnum. Til dæmis kom hljómsveitin til Íslands þann 3. október 2008 og var með tónleika á Græna hattinum, Nasa og Hellinum. Lag þeirra, Ormurinn langi naut mikilla vinsælda 2002 og fyrsta breiðskífan How far to Asgaard seldist í 3.000 eintökum hér á landi.