Átökin á Norður-Írlandi eða í daglegu tali Vandræðin (írska: Na Trioblóidí, enska: The Troubles) áttu sér stað á seinni hluta 20. aldar og snérust um þjóðernishyggju. Átökin hófust á sjöunda áratugnum og þeim er talið hafa lokið á tíunda áratugnum við undirskrift Föstudagssáttmálans árið 1998. Síðan þá hefur verið friður á Norður-Írlandi.
Átökin eiga uppruna sinn í klofningi eyjunnar Írlands árið 1920. Ólíkt annars staðar á eyjunni, þar sem sjálfstæðissinnaðir kaþólikkar voru í meirihluta, voru mótmælendur sem vildu halda sambandi við Bretland í meirihluta í norðursýslum eyjunnar.