Élisabeth Borne | |
---|---|
Forsætisráðherra Frakklands | |
Í embætti 16. maí 2022 – 9. janúar 2024 | |
Forseti | Emmanuel Macron |
Forveri | Jean Castex |
Eftirmaður | Gabriel Attal |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 18. apríl 1961 París, Frakklandi |
Þjóðerni | Frönsk |
Stjórnmálaflokkur | Endurreisn (frá 2022) |
Háskóli | École polytechnique École des ponts ParisTech Collège des Ingénieurs |
Starf | Verkfræðingur, stjórnmálamaður |
Élisabeth Borne (f. 18. apríl 1961) er frönsk stjórnmálakona og verkfræðingur sem er fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands. Hún var atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn forvera síns, Jeans Castex, frá 2020 til 2022. Þann 16. maí 2020 útnefndi Emmanuel Macron Frakklandsforseti Borne nýjan forsætisráðherra eftir að Castex sagði af sér. Borne er önnur konan til að gegna embætti forsætisráðherra Frakklands, á eftir Édith Cresson um þrjátíu árum fyrr.
Borne vann sem framkvæmdastjóri borgarskipulagsmála hjá Parísarborg frá 2008 til 2013.
Árið 2013 var hún útnefnd sveitarstjóri sýslunnar Vienne og stjórnsýsluhéraðsins Poitou-Charentes, fyrst kvenna. Frá 2014 til 2015 var Borne einkaritari Ségolène Royal, þáverandi umhverfis-, orku- og sjálfbærnismálaráðherra.
Borne var síðar framkvæmdastjóri RATP Group, opinbers hlutafélags í almenningssamgangnageiranum sem rekur jarðlestakerfi Frakklands, frá 2015 til 2017.
Borne var lengi meðlimur í franska Sósíalistaflokknum en hún kaus Emmanuel Macron í forsetakosningum Frakklands árið 2017 og gekk síðar í flokk Macrons, Endurreisn.
Borne var samgöngumálaráðherra frá 2017 til 2019 í fyrstu og annarri ríkisstjórn Édouards Philippe forsætisráðherra og síðan umhverfisráðherra frá 2019 til 2020.
Árið 2020 var Élisabeth Borne útnefnd verkalýðs- og atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Jeans Castex forsætisráðherra. Þann 16. maí 2022 var hún síðan útnefnd forsætisráðherra Frakklands eftir afsögn Castex, þremur vikum eftir að Emmanuel Macron náði endurkjöri til forsetaembættisins. Hún er einungis önnur konan til að gegna embættinu, á eftir Édith Cresson. Hún er jafnframt fyrsti forsætisráðherrann sem Macron hefur tilnefnt sem er talin vinstra megin við miðju.
Stuðningsflokkar Macrons töpuðu meirihluta sínum í þingkosningum Frakklands þann 19. júní 2022, aðeins rúmum mánuði eftir að Borne varð forsætisráðherra. Borne bauð Macron afsögn sína í kjölfar kosninganna en Macron afþakkaði hana.
Borne tilkynnti afsögn sína í aðdraganda uppstokkunar í stjórn Macrons þann 8. janúar 2024.
Árið 2019 var Borne á móti staðfestingu Frakklands á fríverslunarsamningi Evrópusambandsins við Mercosur.
Fyrirrennari: Jean Castex |
|
Eftirmaður: Gabriel Attal |