Íslenska Wikipedia var stofnuð 5. desember 2003 og er íslensk útgáfa af Wikipediu. Íslenska Wikipedian er með yfir 50 þúsund greinar og innan við 20 virka notendur alla jafnan.
Í tilefni af tíu ára afmæli íslensku Wikipediu 5. desember 2013 var haldið málþing í Landsbókasafni Íslands. Af sama tilefni voru 30 ljósmyndir teknar vegna óeirðanna á Austurvelli 1949 sem höfðu ekki áður komið fyrir sjónir almennings fengnar skannaðar frá Þjóðskjalasafni Íslands og settar á Wikimedia Commons. Þá var einnig ákveðið, í sambandi við stofnun félagsins Wikimedia Íslands að halda vikuleg Wikipedia-kvöld í tölvuverinu á 3. hæð í Landsbókasafni Íslands.
Frá stofnun, í desember 2003 og fram að nóvember 2005 var vöxtur íslensku Wikipediu tiltölulega hægur. Í nóvember 2005 voru vélrænt settar inn greinar um íslensk mannanöfn, yfir 3.500 greinar. Í maí 2006 var heildarfjöldi greina orðinn tíu þúsund (sjá Wikipedia:Merkisáfangar). Eftir það er sæmilega mikill vöxtur og 20 þúsund greinum er náð í febrúar 2008. Þrjátíu þúsund greinum var náð í nóvember 2010 og fjörtíuþúsund haustið 2015. 50.000 greinar náðust um mitt ár 2020.
Þegar gögn um virkni á íslensku Wikipediu eru skoðuð kemur í ljós að notendur sem eru mjög virkir á hverjum mánuði (með yfir 100 breytingar) er hægt að telja á fingrum annarrar handa en notendur sem eru virkir (með fleiri en fimm breytingar) eru í kringum 30.