Kirkjuþing haldið í Lyon. Jón erkibiskup í Niðarósi kom heim þaðan með þyrni úr kórónu Krists, sem Filippus Frakkakonungur sendi Magnúsi lagabæti að gjöf og þótti mikill dýrgripur.
Kirkjuþingið ákvað að innheimta næstu sex ár sérstakan skatt til að standa straum af kostnaði við krossferðir.
Gregoríus X páfi ákvað að framvegis skyldu kardínálar lokaðir inni þar til nýr páfi hefði verið kjörinn, enda hafði verið páfalaust í þrjú ár áður en samstaða tókst um kjör hans sjálfs.