Morðbréfamálið: Guðbrandur Þorláksson, Hólabiskup, stefndi lögréttumanninum Jóni Ólafssyni fyrir falsanir og vændi Jón Sigurðsson, lögmann, um hórdómsbrot. Honum var gert að sættast við þann síðarnefnda á Alþingi um sumarið.
Ónafngreindur maður tekinn af lífi fyrir morð framið í Steingrímsfirði, Strandasýslu.
Tveir menn, ónafngreindir, teknir af lífi fyrir morð á syni bóndans að Vindifelli í Vopnafirði.
Sigríður Halldórsdóttir og Jón Oddsson, mágur hennar, tekin af lífi í Dalasýslu fyrir dulsmál, henni drekkt í Gerðarlæk á Ballarárþingi.
Tilvísanir
↑Í annálum fer tveimur sögum af því hvaða ár þetta var, 1611 eða 1627.
↑Upplýsingar um aftökur sóttar á vef rannsóknarverkefnisins Dysjar hinna dauðu, þá ekki síst skrá á slóðinni https://dhd.hi.is/gogn/Info.pdf, sótt 15.2.20202.