Alþýðulýðveldið Donetsk | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Þjóðsöngur Donetsk | |
Höfuðborg | Donetsk |
Opinbert tungumál | Rússneska |
Stjórnarfar | Lýðveldi
|
Forseti | Denís Púshílín |
Forsætisráðherra | Vladímír Pashkov |
Sjálfstæði | |
• Sjálfstæðisyfirlýsing + de facto sjálfstæði | 7. apríl 2014 |
• Kosningar um sjálfstæði | 11. maí 2014 |
• Viðurkenning Rússlands | 21. febrúar 2022 |
• Formlega innlimað í Rússland | 30. september 2022 |
Flatarmál • Samtals |
8.902 km2 km² |
Mannfjöldi • Samtals (2021) • Þéttleiki byggðar |
2.302.444 /km² |
VÞL (2019) | |
Gjaldmiðill | rúbla |
Tímabelti | UTC+3 |
Ekið er | hægra megin |
Alþýðulýðveldið Donetsk var ríki á Donbas-svæðinu í Úkraínu sem lýsti yfir sjálfstæði þann 11. maí 2014 og var formlega innlimað í Rússland árið 2022. Höfuðborg og stærsta borg ríkisins var Donetsk og Denís Púshílín var forseti þess frá árinu 2018 til ársins 2022. Á meðan ríkið hélt fram sjálfstæði sínu var almennt litið á það sem rússneskt leppríki.
Aðskilnaðarsinnar í Donetsk, sem aðhylltust nánara samband við Rússland, klufu sig frá Úkraínu í kjölfar úkraínsku byltingarinnar og Krímskagakreppunnar árið 2014. Haldin var atkvæðagreiðsla um sjálfstæði héraðanna Donetsk og Lúhansk þann 11. maí 2014. Í kjölfarið tilkynntu skipuleggjendur atkvæðagreiðslunnar að kjósendur hefðu samþykkt sjálfstæði með um 80 prósentum atkvæða og 75 prósenta kjörsókn. Engir óháðir eftirlitsmenn gátu staðfest niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar og ekkert erlent ríki viðurkenndi lögmæti hennar.
Úkraínsk stjórnvöld viðurkenndu ekki lögmæti atkvæðagreiðslunnar og bentu á að stjórnarskrá landsins heimilaði ekki breytingar á yfirráðasvæði í atkvæðagreiðslu nema öllum landsmönnum væri leyft að kjósa. Rússneskir hermenn fóru inn í Donbas í ágúst 2014 og hafa hjálpað stjórnvöldum þar að verjast tilraunum Úkraínumanna til að endurheimta stjórn í Donetsk og Luhansk. Lítil breyting varð á yfirráðasvæði í hernaðardeilum um héruðin á næstu árum og gjarnan var fjallað um átökin sem „frosin átök.“
Ríkisstjórn Úkraínu hefur ekki viðurkennt sjálfstæði Donetsk og lítur á ríkið og leiðtoga þess sem uppreisnarmenn. Þorri alþjóðasamfélagsins skilgreinir Donetsk jafnframt sem hluta af Úkraínu. Rússland varð fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Donetsk þann 21. febrúar 2022. Alþýðulýðveldið Donetsk er þátttakandi í innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.
Þann 21. september tilkynnti stjórn Alþýðulýðveldisins Donetsk, ásamt leppstjórnum Rússa á hernámssvæðum þeirra í Lúhansk, Kherson og Zaporízjzja, að þær hygðust halda atkvæðagreiðslur um það að gerast hluti af Rússneska sambandsríkinu líkt og hafði verið gert á Krímskaga árið 2014. Atkvæðagreiðslurnar hófust tveimur dögum síðar. Eftir fjóra daga tilkynntu stjórnirnar að yfirgnæfandi meirihlutar kjósenda hefðu samþykkt að héruðin skyldu sameinast Rússlandi. Ýmsir erlendir þjóðarleiðtogar fordæmdu atkvæðagreiðslurnar og sögðu niðurstöður þeirra hafa verið ákveðnar fyrirfram. Volodymyr Zelenskyj Úkraínuforseti sagði þær markleysu og að þær myndu engu breyta um þær fyrirætlanir Úkraínumanna að endurheimta héruðin.
Vladímír Pútín, forseti Rússlands, tilkynnti formlega innlimun héraðanna fjögurra í Rússland þann 30. september 2022 á stórviðburði á Rauða torginu í Moskvu. Þegar Pútín tilkynnti þetta stjórnuðu Rússar engu af héruðunum fjórum í heild sinni.