Andreas Kaplan (f. 5. október 1977 í München, Þýskalandi) er prófessor í stafrænni umbreytingu, einkum gervigreind og sýndarveruleika ásamt því að vera sérfræðingur á sviði æðri menntunar. Hann starfar sem forseti Kühne Logistics University. Kaplan gengdi áður stöðu rektors hjá ESCP Business School, sem er hluti af Sorbonne Alliance.
Rannsókn Kaplan snýr að stafrænni umbreytingu samfélagsins, sér í lagi vegna framfara á sviðum gervigreindar og samskipta í gegnum samfélagsmiðla. Rannsókn frá Standford-háskóla telur Kaplan með áhrifaríkustu vísindamönnum sem mest er vitnað í á heimsvísu. Á Google Scholar er vitnað í Kaplan yfir 40.000 sinnum.
Kaplan hóf starfsferil sinn við Sciences Po Paris og ESSEC áður en hann gekk til liðs við ESCP Business School þar sem hann gengdi stöðu rektors. Hann starfar eins og er sem forseti Kühne Logistics University. Kaplan er stofnmeðlimur European Center for Digital Competitiveness og situr í stjórn námsráðgjafarnefndar Kozminski háskólans.
Kaplan er með doktorsgráðu frá Sorbonne-háskóla og doktorsgráðu frá háskólanum í Köln og viðskiptaháskólanum HEC Paris. Hann er með MPA-gráðu frá École Nationale d'Administration, MBA-gráðu frá The Power Business School, MS-gráðu frá ESCP og BS-gráðu frá háskólanum Ludwig-Maximilians í München.