Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
CISV eru friðarsamtök sem voru stofnuð árið 1950. Síðan þá hafa þau breiðst til yfir 69 landa og hafa yfir 300.000 þáttakendur tekið þátt í yfir 7.000 alþjóðlegum viðburðum á vegum samtakanna.
Hjá CISV eru viðburðir þar sem ungmenni fá tækifæri til að hitta jafningja sína frá öðrum löndum. Fyrsti alþjóðlegi viðburðurinn var haldinn árið 1951 í Glendale, Ohio.
CISV á Íslandi sendi fyrst þáttakendur á viðburð erlendis árið 1954 þegar þrjú ungmenni fóru til Svíþjóðar. Síðan þá hafa þau sent ár hvert. Þó voru samtökin ekki formlega stofnuð á Íslandi fyrr en árið 1981. Árið 1984 hélt CISV á Íslandi fyrsta alþjóðlega viðburðinn á íslandi með erlendum þáttakendum.