Eiríkur Bergmann | |
---|---|
Fæddur | 6. febrúar 1969 |
Þjóðerni | Íslenskur |
Menntun | Kaupmannahafnarháskóli Háskóli Íslands |
Störf | Stjórnmálafræðingur, rithöfundur |
Eiríkur Bergmann Einarsson (f. 6. febrúar 1969) er íslenskur stjórnmálafræðingur og rithöfundur.
Eiríkur Bergmann fæddist í Reykjavík árið 1969 og nam stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla. Hann er prófessor í stjórnmálafræði og forstöðumaður Evrópufræðaseturs við Háskólann á Bifröst. Hann útskrifaðist með Cand.scient.pol.-gráðu frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1998 og doktorsgráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2009. Hann hefur verið gestakennari við ýmsar menntastofnanir, eðal annars við félagsvísindabrautina í Háskólanum í Ljubljana í Slóveníu.
Eiríkur er aðallega þekktur fyrir greiningu sína á þjóðernispopúlisma, sem hann telur að hafi orðið að sérstakri tegund nýþjóðernishyggju í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar. Hann hefur einnig rannsakað samsæriskenningar, Evrópusamruna og efnahagskerfi Íslands, sér í lagi í tengslum við efnahagshrunið 2008 og eftirmála þess.
Eiríkur Bergmann er virkur greinahöfundur hjá ýmsum íslenskum fréttablöðum og hjá breska blaðinu The Guardian.
Eiríkur var kjörinn árið 2010 á íslenska stjórnlagaþingið og var árið 2011 einn 25 meðlima stjórnlagaráðsins sem ætlað var að vinna endurbætur á stjórnarskrá Íslands.