| ||||
Hans-Adam 2.
| ||||
Ríkisár | 13. nóvember 1989 – | |||
Skírnarnafn | Johannes Adam Ferdinand Alois Josef Maria Marco d'Aviano Pius | |||
Fæddur | 14. febrúar 1945 | |||
Zürich, Sviss | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Frans Jósef 2. | |||
Móðir | Georgina von Wilczek | |||
Eiginkona | Marie Kinsky von Wchinitz und Tettau | |||
Börn | Alois, Maximilian, Constantin, Tatjana |
Hans-Adam 2. (Johannes Adam Ferdinand Alois Josef Maria Marco d'Aviano Pius; f. 14. febrúar 1945) er núverandi furstinn af Liechtenstein. Hann er sonur Frans Jósefs 2. fursta af Liechtenstein (1906–1989) og greifynjunnar Georgínu von Wilczek. Hann ber jafnframt titlana hertogi af Troppau og Jägerndorf og greifi af Rietberg. Hans-Adam er ríkasti erfðaeinvaldur í Evrópu.
Hans-Adam fæddist þann 14. febrúar 1945 í Zürich í Sviss og er elsti sonur Frans Jósefs 2. fursta og Gínu furstynju. Guðfaðir Hans-Adams var Píus 12. páfi. Frans Jósef 2. hafði tekið við furstatigninni árið 1938 eftir andlát barnlauss afabróður síns, Frans 1., og Hans-Adam varð því krónprins ríkisins strax við fæðingu.
Árið 1969 útskrifaðist Hans-Adam frá Háskólanum í St. Gallen með mastersgráðu í viðskipta- og hagfræði.
Árið 1984 fól Frans Jósef 2. syni sínum formlega að fara dagsdaglega með málefni ríkisins í sínu nafni en hélt þó formlega furstatigninni og stöðu þjóðhöfðingjans. Hans-Adam tók formlega við sem fursti eftir andlát föður síns þann 13. nóvember 1989.
Árið 2003 fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrárbreytingar sem Hans-Adam hafði lagt fram til þess að auka pólitísk völd sín. Furstinn hafði hótað að flytja úr landi ef breytingarnar yrðu ekki samþykktar. Breytingarnar voru samþykktar með um 64% atkvæða og með þeim fékk furstinn neitunarvald gegn lagasetningum og vald til þess að breyta stjórnarskránni, skipa dómara og láta reka ríkisstjórnina ef honum þóknast hún ekki.
Þann 15. ágúst 2004 gerði Hans-Adam elsta son sinn, Alois krónprins, að ríkisstjóra til að fara með dagleg völd sín. Hans-Adam er þó enn löglega þjóðhöfðingi landsins.
Í júlí árið 2012 höfnuðu Liechtensteinar í þjóðaratkvæðagreiðslu tillögu um að takmarka völd furstaættarinnar. Nokkrum dögum fyrir atkvæðagreiðsluna hafði Alois krónprins tilkynnt að hann myndi beita neitunarvaldi sínu gegn öllum afléttingum á banni ríkisins við þungunarrofum, sem einnig átti að kjósa um. Kjörsókn hrundi í kjölfarið og 76% þeirra sem kusu í fyrri atkvæðagreiðslunni studdu áframhaldandi neitunarvald furstans gegn niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslna. Meðlimir á löggjafarþinginu höfðu áður komið furstanum til varnar þann 23. maí og höfðu kosið með 18 atkvæðum gegn sjö á móti tillögum um að takmarka völd furstans.
Hans-Adam á bankahópinn LGT Group. Fjölskylduauðæfi hans nema um 7,6 milljörðum Bandaríkjadala og persónuleg auðæfi hans um fjórum milljörðum, sem gerir hann einn ríkasta þjóðhöfðingja heims og auðugasta erfðaeinvald Evrópu. Hann á mikið safn listaverka sem er að miklu leyti aðgengilegt almenningi á Liechtenstein-safninu í Vín.
Þann 30. júlí árið 1967 kvæntist Hans-Adam frænku sinni, Marie Aglaë Kinsky von Wchinitz und Tettau greifynju, í dómkirkjunni í Vaduz. Þau eignuðust fjögur börn: Alois krónprins, Maximilían prins, Konstantínus prins og Tatjönu prinsessu.
Furstinn er heiðursmeðlimur í K.D.St.V. Nordgau Prag Stuttgart, bræðralagi kaþólskra stúdenta sem á aðild að sambandi þýskra og kaþólskra stúdentabræðralaga.
Árið 2000 varði furstinn 12 milljónum Bandaríkjadala til að koma á fót Stofnun Liechtenstein um sjálfræði (e. Liechtenstein Institute on Self-determination; LISD) við almennings- og alþjóðamálastofnun Princeton-háskóla. Á æskuárum sínum gekk Hans-Adam í ríkisskátafélag Liechtenstein í Vaduz. Hann er jafnframt fyrrum meðlimur í skátahreyfingunni Wien 16-Schotten í Vínarborg og meðlimur í Heimsstofnun skáta.
Hans-Adam hefur skrifað stjórnmálaritgerðina Ríkið á þriðja árþúsundinu (ISBN 9783905881042), sem var birt árið 2009. Í henni færði hann rök fyrir áframhaldandi mikilvægi hins pólitíska hlutverks þjóðríkisins. Umdeilt reyndist þegar hann reyndi að öðlast einkaleyfi á mið-asískum þjóðarréttum sem hafa verið til í mörgþúsund ár, þar á meðal basmati-hrísgrjónum, í gegnum bandaríska einkaleyfisskrifstofu. Furstinn fékk einkaleyfið en lét það af hendi vegna mótmæla frá Indlandi, Bangladess og Pakistan.
Hans-Adam telur lýðræði hentugasta stjórnarfarið og telur að Kína og Rússland muni smám saman tileinka sér það þótt hann telji að það muni reynast þeim ríkjum erfitt. Hann hefur lýst yfir að hlutverk furstaættarinnar í Liechtenstein sé aðeins lögmætt í ljósi samþykkis þjóðarinnar. Hann telur að ríkisvald ætti aðeins að ná til tiltekinna sviða og hefur skrifað að almenningur verði að „hafa frelsi undan öllum ónauðsynlegum þrautum og byrðum sem hlaðið hefur verið á hann síðustu öldina og hefur dregið athygli ríkisins frá tveimur helstu viðfangsefnum þess: viðhaldi réttarríkisins og utanríkisstefnunni“.
Í viðtali sem tekið var í nóvember 2010 sagði Hans-Adam að hann sæi ákveðna galla á hlutum stjórnarskrár Bandaríkjanna, þar á meðal skort á beinu lýðræði. Hann sagði einnig: „Ég sit hér og það er því Bandaríkjamenn björguðu okkur í seinni heimsstyrjöldinni og kalda stríðinu. Því er ég þeim afar þakklátur.“
Hans-Adam lagði fram inngang um sjálfræði ríkja í bókinni Sourcebook, on Self-Determination and Self-Administration (ISBN 1-55587-786-9, 1997) og í alfræðiorðabók Princeton-háskóla um málefnið.
Fyrirrennari: Frans Jósef 2. |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |