Haukur Morthens fæddist við Þórsgötu í Reykjavík, sonur Edvards Morthens, norsks manns og Rósu Guðbrandsdóttur ættaðri úr Landssveit. Haukur var 11 ára þegar hann kom fyrst fram með Drengjakór Reykjavíkur á söngskemmtan í Nýja bíó og söng einsöng. Svo liðu árin, Haukur þroskaðist sem og feimnin sem átti tök í honum. Í Alþýðuprentsmiðjunni þar sem hann var við nám, þá 18 ára, voru tvær stúlkur sem voru að undirbúa skemmtun fyrir Alþýðuflokkinn. Þær voru ólmar að fá þennan unga og glæsilega mann til að syngja á skemmtuninni enda höfðu fregnir borist um hæfileika hans. Haukur var tregur til enda feiminn en gat vart neitað svo fögrum meyjum og sló til. Þar með var teningunum kastað og þegar Haukur Morthens hóf feril sinn 19 ára með hljómsveit Bjarna Böðvarssonar eignaðist þjóðin einn sinn frægasta, ástsælasta og þekktasta dægurlagasöngvara fyrr og síðar.
Haukur Morthens syngur 1963
Haukur Morthens syngur 1963 - Bakhlið
Haukur Morthens - Hátíð í bæ 1964
Haukur Morthens - Hátíð í bæ 1964 - Bakhlið
Haukur Morthens - Með beztu kveðju 1968
Haukur Morthens - Með beztu kveðju 1968 - Bakhlið
24 metsölulög - Haukur Morthens 1974
Haukur Morthens - Nú er Gyða á gulum kjól 1978
Haukur Morthens - Nú er Gyða á gulum kjól 1978 - Bakhlið
Haukur Morthens - Lítið brölt 1980
Haukur Morthens - Jólaboð 1981
Haukur Morthens - Melódíur minninganna 1984
Tónlistarferill
Hljómsveitarstjórar sóttust eftir að fá Hauk til að syngja með hljómsveitum sínum því hann var trygging fyrir vinsældum og fullu húsi. Árið 1962 stofnaði hann eigin hljómsveit og var ráðinn til að skemmta í hinum nýja og glæsilega skemmtistað Klúbbnum við Borgartún. Þaðan lá leiðin vítt um lönd og næstu þrjátíu ár söng Haukur sig inn í hug og hjörtu Íslendinga sem Dana og Rússa ýmist sem gestasöngvari með erlendum hljómsveitum eða með eigin hljómsveit.
Stóru plöturnar
Haukur Morthens syngur
Fyrsta stóra platan með Hauki kom út á vegum Fálkans 1963. Þetta var sextán laga plata með áður útgefnum lögum á 78 snúninga plötum og litlum 45 snúninga.
Hátíð í bæ
Jólaplatan "Hátíð í bæ" kom út hjá Hljóðfæraverslun Sigríðar Helgadóttur fyrir jólin 1964. Þetta er fyrsta stóra (LP) jólaplata sem kemur út á íslensku. Alþýðublaðið skrifaði um plötuna 17. desember 1964.
Með beztu kveðju
Árið 1968 var til veitingastaður við Skólavörðuholt sem hét Hábær, þar skemmti Haukur Morthens ásamt hljómsveit.
Nú er Gyða á gulum kjól
Rétt fyrir jólin 1978 kom þriðja stóra platan frá Hauki og nefndist hún "Nú er Gyða á gulum kjól".
Lítið brölt
Þegar platan "Lítið brölt" kom út árið 1980 skrifaði tónlistargagnrýnandi Dagblaðsins, Eyjólfur Melsted um plötuna.
Jólaboð
Árið 1981 ræddi blaðamaður helgarpóstsins, Páll Pálsson við Hauk um nýustu plötuna sem var jólaplata unnin með drengjunum í Mezzoforte.
Þriggja diska safn
Árið 2008 kom út þriggja diska safn með Hauki Morthens á vegum Senu. Einn af umsjónarmönnum með þeirri útgáfu var Trausti Jónsson veðurfæðingur sem sagði meðal annars þetta um Hauk og hljómplötuútgáfu í fylgibæklingi.
Haukur Morthens syngur Capri-Katarína
Haukur Morthens syngur Ó borg, mín borg
Haukur Morthens syngur um Simba sjómann
Haukur Morthens syngur Frostrósir eftir Tólfta september
Haukur Morthens syngur lagið Hljóðlega gegnum Hljómskálagarð
Haukur Morthens syngur um Lóu litlu á Brú
Faxafón
Haukur Morthens stofnaði eigin hljómplötuútgáfu árið 1964 og nefndi "Faxafón". Á lífskeiði útgáfunnar komu út fimm plötur með Hauki, tvær 45 snúninga og þrjár LP plötur auk kasetta og CD.
Útgáfan
45 snúninga
Faxafón No 101 - Haukur Morthens - Fyrir átta árum / Gústi í Hruna
Faxafón No 102 - Haukur Morthens - Með blik í auga / Síldarstúlkan