Hún er næst elst barna Donalds Trump og fyrstu eiginkonu hans, Ivönu Trump, kaupsýslukonu, fyrirsætu og rithöfundar. Hún er fyrsti gyðingurinn sem er hluti af fjölskyldu bandaríkjaforseta, en hún snerist til gyðingdóms þegar hún giftist eiginmanni sínum, Jared Kushner.
Hún gegndi stöðu aðstoðarstjórnanda í fjölskyldufyrirtækinu Trump Organization. Hún var einnig dómari í raunveruleikaþætti föður síns The Apprentice. Hún sagði upp starfi sínu hjá Trump Organization í mars 2017 til að taka við embætti innan ríkisstjórnar föður síns ásamt eiginmanni sínum. Ivanka var gagnrýnd vegna aðgengis að trúnaðarupplýsingum á sama tíma og hún hafði frjálsari hendur en aðrir opinberir starfsmenn. Í kjölfarið bauðst hún sjálfviljug til að senda hinu opinbera „gögn sem krafist var af opinberum starfsmönnum samhliða því að gegna sömu siðareglum og aðrir.“
Samhliða stöðu sinni í Hvíta húsinu starfaði hún einnig við eigið tískufyrirtæki, allt fram í júlí 2018. Sú ákvörðun var gagnrýnd vegna hagsmunaárekstra. Hún var ætíð talin tilheyra innsta hring forsetans, líka áður en hún tók við opinberri stöðu.
Uppvöxtur
Ivanka er fædd á Manhattan í New York og er næst-elsta barn Tékknesk-amerísku fyrirsætunnar Ivönu Trump (áður Zelníčková) og Donalds Trump, sem í júlí 2017 varð 45. forseti Bandaríkjanna.
Hún hefur alltaf notað nafnið Ivanka, sem er slavnesk útgáfa af nafninu Ivana. Foreldrar hennar skildu árið 1992 þegar hún var 10 ára gömul. Hún á tvo bræður, Donald Jr. og Eric, auk hálfsysturinnar Tiffany og hálfbróðurins Barron.
Eftir útskrift frá Wharton starfaði Ivanka stuttlega hjá Forest City Enterprises sem verkefnastjóri fasteignaviðskipta áður en hún gekk til liðs við Trump Organization árið 2005. Hún gegndi þar stöðu framkvæmdastjóra þróunarsviðs.
Árið 2007 hóf hún samstarf með Dynamic Diamond Group, fyrirtæki demantabraskarans Moshe Lax, til að framleiða Ivanka Trump Fine Jewelry, skartgripalínu demanta og gullskartgripa sem seld var í samnefndri verslun á Manhattan. Í nóvember 2011 fluttist verslunin frá Madison Avenue til 109 Mercer Street, í stærra húsnæði í hinu vinsæla SoHo hverfi borgarinnar.
Í desember 2012 kusu konur 100 vogunarsjóða Ivönku Trump í í stjórnarnefnd. Í október árið 2015 sögðu fjölmiðlar frá því að Ivanka Trump skartgripaverslunin á Mercer Street virtist lokuð og bættu við að allt liti út fyrir að húsnæðið stæði autt. Í október 2016 fengust skartgripir Ivönku aðeins til sölu í verslunarhúsnæði í Trump Tower á Manhattan, en vörurnar fengust einnig í verslunum Hudson’s Bay og í öðrum skartgripaverslunum um Bandaríkin og Kanada. Einnig voru vörur hennar til sölu í Barein, Kúveit, Katar, Sádi Arabíu og Arabísku furstadæmunum.
Gagnrýni og pólítískir hagsmunaárekstrar
Ivanka Trump átti einnig fata- og aukahlutalínu sem sem seld var í vöruhúsum í Bandaríkjunum og Kanada, meðal annars Macy’s og Hudson’s Bay. Ivanka var sökuð um hönnunarþjófnað auk þess sem PETA og önnur dýraverndunarsamtök létu í sér heyra vegna notkunar hennar á kanínufeld. Árið 2016 voru treflar úr línu Ivönku innkallaðir en flíkurnar uppfylltu ekki skilyrði Bandarísku neytendasamtakanna um eldhættu. Árið 2016 leiddi athugun í ljós að stærstur hluti af vörunum var framleiddur utan Bandaríkjanna. Ivanka Trump skórnir hafa verið framleiddir af Chengdu Kameido skóverksmiðjunni í Sichuan og Hangzhou HS Fasion (innan G-III samsteypunnar) í Zhejiang.
Í febrúar árið 2017, vegna dræmrar sölu og sniðgöngu viðskiptavina, hættu vöruhúsin Neimann Marcus og Nordstrom viðskiptum með vörur Ivönku Trump, og tilgreindu „lélega frammistöðu“ sem ástæðu ákvörðunarinnar. Aðrar stórverslanir á borð við Marshall’s, TJ Maxx og Hudson’s Bay Company tóku vörurnar einnig úr hillum sínum.
Í febrúar 2017 hvatti ráðgjafi forsetans, Kellyanne Conway, áhorfendur Fox News sjónvarpsstöðvarinnar til að kaupa vörur Ivönku Trump, og sætti gagnrýni fyrir. Í júní 2017 voru þrír starfsmenn samtakanna China Labor Watch, sem berjast gegn þrælkun, handteknir við rannsókn á Huajian International, sem framleiðir vörur fyrir ýmis amerísk fyrirtæki, þar á meðal tískulínu Ivönku Trump. Bandarísk stjórnvöld, undir stjórn Donalds Trump, fóru fram á að þeir yrðu leystir úr haldi. Í júlí 2018 tilkynnti Ivanka síðan að hún hyggðist loka fyrirtækinu og sinna stjórnmálaferli sínum í staðinn.