Kazuo Ishiguro (カズオ・イシグロ Kazuo Ishiguro, upphaflega 石黒一雄 Ishiguro Kazuo, fæddur 8. nóvember 1954) er breskur rithöfundur af japönskum ættum. Hann fæddist í Nagasaki í Japan en fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Englands á 7. áratug 20. aldar. Ishiguro útskrifaðist frá Háskólanum í Kent árið 1978 með BA-gráðu og meistaragráðu í ritlist tveimur árum síðar frá Háskólanum í East Anglia. Hann býr í London ásamt konu sinni og dóttur.
Ishiguro hlaut Whitbread-verðlaunin árið 1986 fyrir aðra skáldsögu sína, An Artist of the Floating World, og Booker-verðlaunin árið 1989 fyrir þriðju skáldsögu sína, Dreggjar dagsins (e. Remains of the Day).
Sjöunda bók hans, Slepptu mér aldrei (e. Never Let Me Go), náði inn á stutta listann til Booker-verðlaunanna.
Þann 5. október 2017 tilkynnti Sænska akademían að Kazuo Ishiguro hlyti Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2017. Rökstuðningur nefndarinnar var að Ishiguro hafi „með tilfinningaþrungnum skáldsögum afhjúpað tómarúmið undir falskri upplifun okkar af tengingu við heiminn“.
Vefur Faber and Faber-útgáfunnar um Ishiguro.