Listi yfir fullvalda ríki gefur yfirlit yfir fullvalda ríki um allan heim með upplýsingum um stöðu þeirra og viðurkenningu á fullveldi þeirra.
Hægt er að skipta ríkjunum 208 í þrjá flokka eftir því hver staða þeirra er innan Sameinuðu þjóðanna: 193 aðildarríki, 2 áheyrnarríki, og 13 önnur ríki. Dálkurinn „Deilur um fullveldi“ sýnir að fullveldið er óumdeilt í 188 tilvikum, en umdeilt í 18 tilvikum. Af þessum 18 eru 6 aðildarríki, 1 áheyrnarríki og 11 önnur ríki. Að auki eru 2 ríki með sérstaka stöðu.
Listar af þessu tagi eru alltaf umdeilanlegir, þar sem engin bindandi skilgreining er til á því hvaða skilyrði ríki þurfa að uppfylla til að teljast fullvalda. Nánar er fjallað um skilyrðin hér fyrir neðan. Á listanum eru líka lönd sem eru talin hafa stöðu fullvalda ríkja de facto, en ekki ætti að líta á það sem stuðning við kröfur um viðurkenningu á sjálfstæði þeirra.
Þessi listi á rætur að rekja til skilgreiningarinnar á því hvað telst fullvalda ríki samkvæmt fyrstu grein Montevídeósáttmálans frá 1933. Samkvæmt sáttmálanum, þarf fullvalda ríki að hafa þessa eiginleika: (a) stöðugan fólksfjölda, (b) afmarkað landsvæði, (c) ríkisstjórn, og (d) möguleika á því að vinna með öðrum ríkjum, svo fremi sem það hafi ekki fengist með vopnavaldi, hótunum eða öðrum þvingunaraðgerðum.
Deilt er um það hvort og að hve miklu leyti viðurkenning skiptir máli fyrir sjálfstæði ríkja. Ef skilgreiningunni hér að framan er fylgt ætti hún að nægja til að ríki teljist sjálfstæð, og viðurkenning annarra ríkja skiptir þá engu máli. Á hinn bóginn, ef óskilyrtu kenningunni um ríkjamyndun er fylgt getur ríki aðeins talist fullgildur aðili að alþjóðasamskiptum ef önnur ríki viðurkenna fullveldi þess. Á eftirfarandi lista eru ríki sem:
Í sumum tilvikum kann að vera umdeilt hvort tiltekið ríki uppfylli skilyrðin í Montevídeósáttmálanum. Ríki sem telja sig fullvalda en uppfylla ekki öll skilyrðin eru stundum kölluð hálfgildingsríki.
Á grundvelli þessara skilyrða eru því 208 ríki á listanum:
Í töflunni er að finna undirlista yfir lönd sem eru ýmist ekki fullvalda eða eru nátengd öðru fullvalda ríki. Þar er líka að finna svæði þar sem yfirráð annars ríkis eru takmörkuð með alþjóðasamningum. Þetta eru:
Heiti ríkjanna hér eru í langflestum tilvikum samkvæmt lista Árnastofnunar yfir ríkjaheiti.
Almennt og opinbert heiti | Aðild að Sameinuðu þjóðunum | Deilur um fullveldi | Frekari upplýsingar um stöðu og viðurkenningu fullveldis |
---|---|---|---|
↓ Aðildarríki og áheyrnarríki Sþ ↓ | |||
Sjá færsluna fyrir Abkasíu | Abkasía →|||
Afganistan | Aðildarríki Sþ | Engar | Ríkjandi stjórn í Afganistan sem nefnir landið „íslamska emírsdæmið Afganistan“, hefur ekki verið viðurkennd af neinu ríki. Sameinuðu þjóðirnar viðurkenna stjórn „íslamska lýðveldisins Afganistan“ sem réttmæta stjórn landsins. |
Albanía – Lýðveldið Albanía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Alsír – Alþýðulýðveldið Alsír | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Sjá færsluna fyrir Kína | Alþýðulýðveldið Kína →|||
Sjá færsluna fyrir Norður-Kóreu | Alþýðulýðveldið Kórea →|||
Andorra – Furstadæmið Andorra | Aðildarríki Sþ | Engar | Andorra er samfurstadæmi þar sem embætti þjóðhöfðingja deilist á Frakklandsforseta og biskupinn af Urgell, sem aftur er skipaður af páfa. |
Angóla – Lýðveldið Angóla | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Antígva og Barbúda | Aðildarríki Sþ | Engar | Antígva og Barbúda á aðild að Breska samveldinu. Eitt sjálfstjórnarhérað, Barbúda, er hluti af ríkinu. |
Argentína – Argentínska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | Argentína er sambandsríki 23 fylkja og einnar sjálfstjórnarborgar. |
Armenía – Lýðveldið Armenía | Aðildarríki Sþ | Ekki viðurkennt af Pakistan. | Pakistan viðurkennir ekki Armeníu vegna átakanna um Nagornó-Karabak. |
Aserbaísjan – Lýðveldið Aserbaísjan | Aðildarríki Sþ | Engar | Eitt sjálfstjórnarhérað, Sjálfstjórnarlýðveldið Naksjivan, er útlenda Aserbaísjan. |
Austur-Tímor – Lýðstjórnarlýðveldið Tímor-Leste | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Austurríki – Lýðveldið Austurríki | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. Austurríki er sambandsríki 9 fylkja. |
Ástralía – Samveldið Ástralía | Aðildarríki Sþ | Engar | Ástralía er aðili að Breska samveldinu og sambandsríki sex fylkja, þriggja yfirráðasvæða og sex handanhafssvæða, auk tilkalls til lands á Suðurskautslandinu. Handanhafssvæði Ástralíu eru: |
Bahamaeyjar – Samveldi Bahamaeyja | Aðildarríki Sþ | Engar | Bahamaeyjar eiga aðild að Breska samveldinu. |
Bandaríkin – Bandaríki Norður-Ameríku | Aðildarríki Sþ | Engar | Bandaríkin eru sambandsríki 50 fylkja, eins alríkisumdæmis og eins innlimaðs yfirráðasvæðis (Palmýrurif). Auk þess fer alríkisstjórnin með yfirráð yfir 13 hjálendum. Af þeim eru fimm byggðar:
Hún fer líka með stjórn nokkurra óbyggðra eyja: Stjórnin gerir líka tilkall til eftirfarandi svæða: Þrjú sjálfstæð ríki hafa gerst sambandsríki Bandaríkjanna með samningi um frjálst samband:
|
Bangladess – Alþýðulýðveldið Bangladess | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Barbados | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Barein – Konungsríkið Barein | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Belgía – Konungsríkið Belgía | Aðildarríki Sþ | Engar | Belgía á aðild að Evrópusambandinu. Belgía er sambandsríki þriggja málsamfélaga og þriggja héraða. |
Belís | Aðildarríki Sþ | Engar | Belís á aðild að Breska samveldinu. |
Benín – Lýðveldið Benín | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Bosnía og Hersegóvína | Aðildarríki Sþ | Engar | Bosnía og Hersegóvína er mynduð úr tveimur aðilum:
Auk þess er Brčko-umdæmi sjálfstjórnarumdæmi. |
Botsvana – Lýðveldið Botsvana | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Bólivía – Fjölþjóðaríkið Bólivía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Brasilía – Sambandslýðveldi Brasilíu | Aðildarríki Sþ | Engar | Brasilía er sambandsríki með 26 fylki og eitt alríkisumdæmi. |
Bretland – Sameinað konungsríki Stóra-Bretlands og Norður-Írlands | Aðildarríki Sþ | Engar | Bretland á aðild að Breska samveldinu. Það er samsett úr fjórum aðildarlöndum: Englandi, Norður-Írlandi, Skotlandi og Wales. Bretlandi tilheyra 13 hjálendur auk tilkalls til lands á Suðurskautslandinu:
Breska krúnan fer líka með yfirráð yfir þremur krúnunýlendum með heimastjórn: |
Brúnei – Þjóðin Brúnei, bústaður friðarins | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Búlgaría – Lýðveldið Búlgaría | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Búrkína Fasó | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Sjá færsluna fyrir Mjanmar | Búrma →|||
Búrúndí – Lýðveldið Búrúndí | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Bútan – Konungsríkið Bútan | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Chile/Síle – Lýðveldið Chile | Aðildarríki Sþ | Engar | Tilkall Chile til lands á Suðurskautslandinu er formlega skilgreint sem sveitarfélagið Antártica Chilena sem aftur er hluti af Magellaneshéraði. |
Sjá færsluna fyrir Cooks-eyjar | Cooks-eyjar →|||
Sjá færsluna fyrir Fílabeinsströndina | Côte d'Ivoire →|||
Danmörk – Konungsríkið Danmörk | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. Tvö heimastjórnarsvæði eru hluti af konungsríkinu:
Danmörk, Færeyjar og Grænland mynda þrjú lönd konungsríkisins. Danmörk er aðildarríki Evrópusambandsins, en aðildin nær ekki til Færeyja og Grænlands. |
Djibútí – Lýðveldið Djibútí | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Dóminíka – Samveldi Dóminíku | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Dóminíska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Egyptaland – Arabíska lýðveldið Egyptaland | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Eistland – Lýðveldið Eistland | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins |
Ekvador – Lýðveldið Ekvador | Aðildarríki Sþ | Engar | |
El Salvador – Lýðveldið El Salvador | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Eritrea – Eritreuríki | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Esvatíní – Konungsríkið Esvatíní | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Eþíópía – Sambandslýðveldið Eþíópía | Aðildarríki Sþ | Engar | Eþíópía er sambandsríki níu héraða og tveggja borga. |
Filippseyjar – Lýðveldið Filippseyjar | Aðildarríki Sþ | Engar | Eitt sjálfstjórnarhérað, Bangsamoro, tilheyrir Filippseyjum. |
Finnland – Lýðveldið Finnland | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins.
|
Fídjieyjar – Lýðveldið Fídjieyjar | Aðildarríki Sþ | Engar | Eitt sjálfstjórnarhérað er á Fídjieyjum, Rotuma. |
Fílabeinsströndin – Lýðveldið Côte d'Ivoire | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Frakkland – Franska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. Frakklandi tilheyra fimm handanhafsumdæmi og -héruð:Franska Gvæjana, Guadeloupe, Martinique, Mayotte og Réunion. Frakklandi tilheyra líka handanhafssvæðin: |
Gabon – Gabonska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Gambía – Lýðveldi Gambíu | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Gana – Lýðveldið Gana | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Georgía | Aðildarríki Sþ | Engar | Georgíu tilheyra tvö sjálfstjórnarlýðveldi, Adjara og sjálfstjórnarlýðveldið Abkasía. Abkasía er de facto undir stjórn Abkasíu. Suður-Ossetía er annað de facto sjálfstætt ríki innan Georgíu sem nýtur takmarkaðrar alþjóðlegrar viðurkenningar. |
Gínea – Lýðveldið Gínea | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Gínea-Bissá – Lýðveldið Gínea-Bissá | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Grenada | Aðildarríki Sþ | Engar | Grenada er aðili að Breska samveldinu. |
Grikkland – Hellenska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. Eitt sjálfstjórnarsvæði, Atosfjall, er innan Grikklands. |
Grænhöfðaeyjar – Lýðveldið Cabo Verde | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Gvatemala – Lýðveldið Gvatemala | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Gvæjana – Samvinnulýðveldið Gvæjana | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Haítí – Lýðveldið Haítí | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Holland – Konungsríkið Holland | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. Innan konungsríkisins eru fjögur lönd með heimastjórn:
Að auki eru þrjú handanhafssveitarfélög í Karíbahafi: Bonaire, Saba og Sint Eustatius. Erópusambandsaðildin nær aðeins til Hollands (Evrópuhlutans). |
Hondúras – Lýðveldið Hondúras | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Hvíta-Rússland/Belarús – Lýðveldið Belarús | Aðildarríki Sþ | Engar | Mörg ríki viðurkenna ekki forseta Hvíta-Rússlands, Alexander Lúkasjenkó, eftir umdeildar forsetakosningar árið 2020. Litáen lítur svo á að samstarfsráð sem Svjatlana Tsikanúskaja leiðir sé réttkjörin stjórn landsins. |
Indland – Lýðveldið Indland | Aðildarríki Sþ | Engar | Indland er sambandsríki 28 fylkja og átta sambandssvæða. |
Indónesía – Lýðveldið Indónesía | Aðildarríki Sþ | Engar | Indónesíu tilheyra fimm sjálfstjórnarhéruð: Aceh, Djakarta, Papúa, Vestur-Papúa og sérstjórnarhéraðið Yogyakarta. |
Íran – Íslamska lýðveldið Íran | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Írak – Lýðveldið Írak | Aðildarríki Sþ | Engar | Írak er sambandsríki 19 landstjóraumdæma. Fjögur þeirra mynda sjálfstjórnarhéraðið Kúrdistanhérað. |
Írland | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Ísland | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Ísrael – Ísraelsríki | Aðildarríki Sþ | Ekki viðurkennt að hluta | Ísrael hefur de facto yfirráð yfir landsvæðum sem Palestínuríki gerir tilkall til. Það hefur innlimað Austur-Jerúsalem, sem nýtur takmarkaðrar alþjóðlegrar viðurkenningar. Ísrael hefur ýmis konar stjórn á svæðum á Vesturbakkanum, og er enn talið hafa hernámslið á Gasaströndinni.
28 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna og Sahrawi-lýðveldið viðurkenna ekki Ísrael. Meirihluti aðildarríkja Sþ lítur á Frelsissamtök Palestínumanna, PLO, sem réttmætan fulltrúa Palestínumanna, en samtökin viðurkenndu Ísrael árið 1993. |
Ítalía – Ítalska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. Á Ítalíu eru 5 sjálfstjórnarhéruð: Ágústudalur, Fríúlí-Venezia Giulia, Sardinía, Sikiley og Suður-Týról. |
Jamaíka | Aðildarríki Sþ | Engar | Á aðild að Breska samveldinu. |
Japan | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Jemen – Lýðveldið Jemen | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Jórdanía – Hashemíska konungsríkið Jórdanía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Kambódía – Konungsríkið Kambódía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Kamerún – Lýðveldið Kamerún | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Kanada | Aðildarríki Sþ | Engar | Kanada er aðili að Breska samveldinu. Það er sambandsríki 10 fylkja og þriggja sjálfstjórnarsvæða. |
Kasakstan – Lýðveldið Kasakstan | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Katar – Katarríki | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Kenía – Lýðveldið Kenía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Kirgistan – Kirgisíska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Kína – Alþýðulýðveldið Kína | Aðildarríki Sþ | Ekki viðurkennt að hluta. Lýðveldið Kína gerir tilkall til alls Kína. | Í Kína eru fimm sjálfstjórnarhéruð, Guangxi, Innri-Mongólía, Ningxia, Tíbet og Xinjiang. Auk þeirra eru sérstjórnarhéruðin:
Kína gerir tilkall til Taívan sem er undir stjórn lýðveldisins Kína sem aftur gerir tilkall til alls Kína. 14 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna og Vatíkanið viðurkenna ekki alþýðulýðveldið. Fyrir utan Bútan viðurkenna þau stjórn lýðveldisins Kína sem réttmæta stjórn alls Kína. |
Sjá færsluna fyrir Lýðveldið Kína | Kína, Lýðveldið →|||
Kíribatí – Lýðveldið Kíribatí | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Sjá færsluna fyrir Lýðstjórnarlýðveldið Kongó | Kongó, Lýðstjórnarlýðveldið →|||
Sjá færsluna fyrir Lýðveldið Kongó | Kongó, Lýðveldið →|||
Kosta Ríka – Lýðveldið Kosta Ríka | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Kólumbía – Lýðveldið Kólumbía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Kómorur – Kómorubandalagið | Aðildarríki Sþ | Engar | Kómorur eru sambandsríki þriggja eyja með sjálfstjórn. |
Sjá færsluna fyrir Norður-Kóreu | Kórea, Norður →|||
Sjá færsluna fyrir Suður-Kóreu | Kórea, Suður →|||
Sjá færsluna fyrir Kósovó | Kósovó →|||
Króatía – Lýðveldið Króatía | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Kúba – Lýðveldið Kúba | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Kúveit – Kúveitríki | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Kýpur – Lýðveldið Kýpur | Aðildarríki Sþ | Ekki viðurkennt af Tyrklandi | Aðildarríki Evrópusambandsins. Norðausturhluti eyjunnar er de facto sjálfstæða Tyrkneska lýðveldið á Norður-Kýpur.
Tyrkland viðurkennir ekki fullveldi Kýpur vegna Kýpurdeilunnar. Tyrkland viðurkennir hins vegar stjórn Tyrkneska lýðveldisins á Norður-Kýpur. |
Laos – Alþýðulýðveldi Laóta | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Lesótó – Konungsríkið Lesótó | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Lettland – Lýðveldið Lettland | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Liechtenstein – Furstadæmið Liechtenstein | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Litáen – Lýðveldið Litáen | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Líbanon – Líbanska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Líbería – Lýðveldið Líbería | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Líbía – Líbíuríki | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Lúxemborg – Stórhertogadæmið Lúxemborg | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Lýðstjórnarlýðveldið Kongó | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Lýðveldið Kongó | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Madagaskar – Lýðveldið Madagaskar | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Sjá færsluna fyrir Norður-Makedóníu | Makedónía →|||
Malasía – Sambandsríkið Malasía | Aðildarríki Sþ | Engar | Malasía er sambandsríki 13 fylkja og þriggja alríkisumdæma. |
Malaví – Lýðveldið Malaví | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Maldívur – Lýðveldi Maldíva | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Malí – Lýðveldið Malí | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Malta – Lýðveldið Malta | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Marokkó – Konungsríkið Marokkó | Aðildarríki Sþ | Engar | Hluti Vestur-Sahara sem Marokkó gerir tilkall til er undir stjórn Sahrawi-lýðveldisins. |
Marshalleyjar – Lýðveldið Marshall-eyjar | Aðildarríki Sþ | Engar | Í frjálsu sambandi við Bandaríkin. |
Máritanía – Íslamska lýðveldið Máritanía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Máritíus – Lýðveldið Máritíus | Aðildarríki Sþ | Engar | Rodrigues er sjálfstjórnareyja innan Máritíus. |
Mexíkó – Bandaríki Mexíkó | Aðildarríki Sþ | Engar | Mexíkó er sambandsríki 31 fylkis og einnar sjálfstjórnarborgar. Sapatistar hafa de facto yfirráð yfir uppreisnarsveitarfélögum í Chiapas. |
Mið-Afríkulýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Miðbaugs-Gínea – Lýðveldið Miðbaugs-Gínea | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Míkrónesía – Sambandsríki Míkrónesíu | Aðildarríki Sþ | Engar | Í frjálsu sambandi við Bandaríkin. Míkrónesía er sambandsríki fjögurra fylkja. |
Mjanmar – Lýðveldi bandalags Mjanmar | Aðildarríki Sþ | Engar | Wa-fylki er de facto sjálfstætt ríki innan Mjanmar. Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki viðurkennt herforingjastjórnina í Mjanmar sem réttmæt stjórnvöld. |
Moldóva – Lýðveldið Moldóva | Aðildarríki Sþ | Engar | Í Moldóvu eru sjálfstjórnarhéruðin Gagauzia og austurbakki Dniester. Austurbakkinn og borgin Bender eru de facto undir stjórn Transnistríu. |
Mongólía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Sjá færsluna fyrir Svartfjallaland | Montenegró →|||
Mónakó – Furstadæmið Mónakó | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Mósambík – Lýðveldið Mósambík | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Namibía – Lýðveldið Namibía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Naúrú – Lýðveldið Naúrú | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Nepal – Sambandslýðveldið Nepal | Aðildarríki Sþ | Engar | Nepal er sambandsríki 7 sýslna. |
Níger – Lýðveldi Níger | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Nígería – Sambandslýðveldið Nígería | Aðildarríki Sþ | Engar | Nígería er sambandsríki 36 fylkja og eins alríkishéraðs. |
Níkaragva – Lýðveldið Níkaragva | Aðildarríki Sþ | Engar | Tvö sjálfstjórnarhéruð eru innan Níkaragva: Atlántico Sur og Atlántico Norte. |
Sjá færsluna fyrir Niue | Niue →|||
Norður-Kórea – Alþýðulýðveldið Norður-Kórea | Aðildarríki Sþ | Suður-Kórea gerir tilkall til Norður-Kóreu. | Þrjú aðildarríki Sþ viðurkenna ekki Norður-Kóreu: Frakkland, Japan og Suður-Kórea. Suður-Kórea gerir tilkall til yfirráða á öllum Kóreuskaganum. |
Norður-Makedónía – Lýðveldið Norður-Makedónía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Sjá færsluna fyrir Tyrkneska lýðveldið á Norður-Kýpur | Norður-Kýpur →|||
Noregur – Konungsríkið Noregur | Aðildarríki Sþ | Engar | Noregur fer með stjórn tveggja aðskildra landsvæða í Evrópu:
Noregur fer með stjórn einnar útlendu og gerir tilkall til tveggja landsvæða á Suðurskautslandinu: |
Nýja-Sjáland | Aðildarríki Sþ | Engar | Nýja-Sjáland á aðild að Breska samveldinu. Nýja-Sjálandi tilheyrir eitt heimastjórnarsvæði og eitt tilkall á Suðurskautslandinu:
Ríkisstjórn Nýja-Sjálands fer með utanríkismál að hluta fyrir tvö ríki sem eru í frjálsu sambandi við Nýja-Sjáland: Þessi lönd eiga í sjálfstæðu stjórnmálasambandi við ýmis ríki, hafa samningsrétt innan Sameinuðu þjóðanna og eru aðilar að ýmsum undirstofnunum þeirra. |
Óman – Soldánsdæmið Óman | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Pakistan – Íslamska lýðveldið Pakistan | Aðildarríki Sþ | Engar | Pakistan er sambandsríki fjögurra fylkja og eins höfuðborgarsvæðis. Pakistan fer með stjórn svæða í Kasmír, en hefur ekki formlega innlimað þau, heldur lítur á þau sem umdeild svæði. Þessir hlutar skiptast í tvö landsvæði, og stjórn þeirra er aðskilin frá stjórn Pakistan:
Azad Kasmír er lýst sem „sjálfstjórnarfylki undir stjórn Pakistan“ meðan Gilgit-Baltistan er lýst sem sjálfstjórnarsvæðum. Oftast er ekki litið á þessi svæði sem fullvalda, þar sem þau uppfylla ekki skilyrðin til þess. |
Palaú – Lýðveldið Palaú | Aðildarríki Sþ | Engar | Í frjálsu sambandi við Bandaríkin. |
Palestína - Palestínuríki | Áheyrnarríki Sameinuðu þjóðanna og aðili að 2 undirstofnunum þeirra. | Ekki viðurkennt að hluta. | Palestínuríki lýsti yfir sjálfstæði árið 1988. Það er ekki viðurkennt af Ísrael, en hefur hlotið viðurkenningu 138 annarra ríkja. Ríkið hefur engin ákveðin landamæri eða raunveruleg yfirráð yfir megninu af því landsvæði sem það gerir tilkall til. |
Panama – Lýðveldið Panama | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Papúa Nýja-Gínea – Sjálfstætt ríki Papúu Nýju-Gíneu | Aðildarríki Sþ | Engar | Papúa Nýja-Gínea á aðild að Breska samveldinu. Það hefur eitt sjálfstjórnarsvæði: Bougainville. |
Paragvæ – Lýðveldið Paragvæ | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Perú – Lýðveldið Perú | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Portúgal – Portúgalska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. Portúgal nær yfir tvö heimastjórnarsvæði: Asóreyjar og Madeira. |
Pólland – Lýðveldið Pólland | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Rúanda – Lýðveldið Rúanda | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Rúmenía | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Rússland – Rússneska sambandsríkið | Aðildarríki Sþ | Engar | Rússland er sambandsríki 85 sambandsaðila (lýðvelda, héraða, sýslna, sjálfstjórnarsvæða, alríkisborga og sjálfstjórnarhéraðs). |
Sjá færsluna fyrir Sahrawi-lýðveldið | Sahrawi-lýðveldið →|||
Salómonseyjar | Aðildarríki Sþ | Engar | Salómonseyjar eiga aðild að Breska samveldinu. |
Sambía – Lýðveldið Sambía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Sameinuðu arabísku furstadæmin | Aðildarríki Sþ | Engar | Sameinuðu arabísku furstadæmin eru sambandsríki sjö furstadæma. |
Samóa – Sjálfstætt ríki Samóa | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Sankti Kristófer og Nevis – Sambandsríki Sankti Kristófer og Nevis | Aðildarríki Sþ | Engar | Sankti Kristófer og Nevis er aðili að Breska samveldinu og sambandsríki tveggja eyja: Sankti Kristófer og Nevis. |
Sankti Lúsía | Aðildarríki Sþ | Engar | Sankti Lúsía er aðili að Breska samveldinu. |
Sankti Vinsent og Grenadínur | Aðildarríki Sþ | Engar | Sankti Vinsent og Grenadínur á aðild að Breska samveldinu. |
San Marínó – Lýðveldið San Marínó | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Saó Tóme og Prinsípe – Lýðstjórnarlýðveldið Saó Tóme og Prinsípe | Aðildarríki Sþ | Engar | Príncipe er sjálfstjórnarhérað innan Saó Tóme og Prinsípe. |
Sádi-Arabía – Konungsríkið Sádi-Arabía | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Senegal – Lýðveldið Senegal | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Serbía – Lýðveldið Serbía | Aðildarríki Sþ | Engar | Í Serbíu eru tvö sjálfstjórnarhéruð, Vojvodina og Kósovó og Metohija. Síðarnefnda héraðið er de facto undir stjórn Kósovó. |
Seychelleseyjar – Lýðveldið Seychelles-eyjar | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Simbabve – Lýðveldið Simbabve | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Singapúr – Lýðveldið Singapúr | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Síerra Leóne – Lýðveldið Síerra Leóne | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Slóvakía – Slóvakíska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Slóvenía – Lýðveldið Slóvenía | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Sómalía – Sambandslýðveldið Sómalía | Aðildarríki Sþ | Engar | Sómalía er sambandsríki sex fylkja. Tvö þeirra, Púntland og Galmudug, hafa lýst yfir sjálfstjórn, og eitt, Sómalíland, er de facto sjálfstætt ríki. |
Sjá færsluna fyrir Sómalíland | Sómalíland →|||
Spánn – Konungsríkið Spánn | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. Spánn skiptist í 17 sjálfstjórnarhéruð og tvær borgir með sérstjórn. |
Srí Lanka – Sósíalíska lýðveldið Srí Lanka | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Suður-Afríka – Lýðveldið Suður-Afríka | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Suður-Kórea – Lýðveldið Kórea | Aðildarríki Sþ | Norður-Kórea gerir tilkall til Suður-Kóreu. | Í Suður-Kóreu er eitt sjálfstjórnarhérað, Jejudo. Suður-Kórea er ekki viðurkennd af Norður-Kóreu sem gerir tilkall til yfirráða á öllum Kóreuskaganum. |
Sjá færsluna fyrir Suður-Ossetíu | Suður-Ossetía →|||
Suður-Súdan – Lýðveldið Suður-Súdan | Aðildarríki Sþ | Engar | Suður-Súdan er sambandsríki 10 fylkja og þriggja stjórnsýsluumdæma.
|
Súdan – Lýðveldið Súdan | Aðildarríki Sþ | Engar | Súdan er sambandsríki 18 fylkja.
|
Súrínam – Lýðveldið Súrínam | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Svartfjallaland | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Sjá færsluna fyrir Esvatíní | Svasíland →|||
Sviss – Svissneska sambandið | Aðildarríki Sþ | Engar | Sviss er sambandsríki 26 kantóna. |
Svíþjóð – Konungsríkið Svíþjóð | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Sýrland – Sýrlenska arabíska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | 20 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna viðurkenna Þjóðarbandalag Sýrlands sem réttmæt stjórnvöld í landinu, fremur en núverandi stjórn landsins.
Héraðið Rojava hefur lýst yfir sjálfstjórn. |
Tadsíkistan – Lýðveldið Tadsíkistan | Aðildarríki Sþ | Engar | Í Tadsíkistan er eitt sjálfstjórnarhérað, Sjálfstjórnarhéraðið Gornó-Badaksjan. |
Taíland – Konungsríkið Taíland | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Sjá færsluna fyrir Lýðveldið Kína | Taívan →|||
Tansanía – Sameinaða lýðveldið Tansanía | Aðildarríki Sþ | Engar | Í Tansaníu er eitt sjálfstjórnarhérað, Sansibar. |
Tékkland | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Sjá færsluna fyrir Austur-Tímor | Tímor-Leste →|||
Tjad – Lýðveldið Tjad | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Tonga – Konungsríkið Tonga | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Tógó – Tógóska lýðveldið | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Sjá færsluna fyrir Transnistríu | Transnistría →|||
Trínidad og Tóbagó – Lýðveldið Trínidad og Tóbagó | Aðildarríki Sþ | Engar | Í Trínidad og Tóbagó er eitt sjálfstjórnarhérað, Tóbagó. |
Túnis – Lýðveldið Túnis | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Túrkmenistan – Lýðveldið Túrkmenistan | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Túvalú | Aðildarríki Sþ | Engar | Túvalú á aðild að Breska samveldinu. |
Tyrkland – Lýðveldið Tyrkland | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Ungverjaland | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. |
Úganda – Lýðveldið Úganda | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Úkraína | Aðildarríki Sþ | Engar | Í Úkraínu er eitt sjálfstjórnarhérað, Sjálfstjórnarlýðveldið Krím, sem er de facto undir yfirráðum Rússlands, ásamt borginni Sevastópol. Hlutar Donetsk-sýslu og Luhansk-sýslu eru de facto undir stjórn Rússlands. |
Úrúgvæ – Austræna lýðveldið Úrúgvæ | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Úsbekistan – Lýðveldið Úsbekistan | Aðildarríki Sþ | Engar | Í Úsbekistan er eitt sjálfstjórnarhérað, Karakalpakstan. |
Vanúatú – Lýðveldið Vanúatú | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Vatíkanið – Borgríkið Vatíkanið | Áheyrnarríki Sþ og aðili að þremur undirstofnunum. | Engar | Páfastóll fer með stjórn Vatíkansins. Páfastóll er fullvalda aðili sem á í stjórnmálasambandi við 183 ríki. Að auki eiga alþjóðlegu stofnanirnar Evrópusambandið og Mölturiddarar í stjórnmálasambandi við Páfastól. Vatíkanið er aðili að Alþjóðakjarnorkustofnuninni, Alþjóðafjarskiptasambandinu, Alþjóðapóstsambandinu og Alþjóðahugverkastofnuninni, auk þess að vera með varanlega áheyrnaraðild. Embættismenn Vatíkansins eru skipaðir af páfa sem er biskup yfir biskupsdæminu Róm og þjóðhöfðingi Vatíkansins ex officio. |
Venesúela – Bólívarska lýðveldið Venesúela | Aðildarríki Sþ | Engar | Venesúela er sambandsíki 23 fylkja, eins höfuðborgarumdæmis og alríkisumdæma. |
Sjá færsluna fyrir Sahrawi-lýðveldið | Vestur-Sahara →|||
Víetnam – Sósíalíska lýðveldið Víetnam | Aðildarríki Sþ | Engar | |
Þýskaland – Sambandslýðveldið Þýskaland | Aðildarríki Sþ | Engar | Aðildarríki Evrópusambandsins. Þýskaland er sambandsríki 16 sambandslanda. |
↑ Aðildarríki og áheyrnarríki Sþ ↑ | |||
↓ Önnur ríki ↓ | |||
Abkasía – Lýðveldið Abkasía | Engin aðild | Georgía gerir tilkall til landsins. | Abkasía og Suður-Ossetía eru aðeins viðurkennd af Rússlandi, Níkaragva, Sýrlandi, Venesúela, Suður-Ossetíu og Transnistríu. Georgía gerir tilkall til yfirráða fyrir hönd sjálfstjórnarlýðveldisins Abkasíu. |
Cookseyjar | Aðili að átta undirstofnunum Sþ | Ríki í frjálsu sambandi við Nýja-Sjáland. Cooks-eyjar eiga í stjórnmálasambandi við 52 ríki og eru aðilar að undirstofnunum Sameinuðu þjóðanna með fulla samningsaðild. Þær deila þjóðhöfðingja með Nýja-Sjálandi og eru auk þess með nýsjálenskan ríkisborgararétt. | |
Kósovó – Lýðveldið Kósovó | Aðili að tveimur undirstofnunum Sþ | Serbía gerir tilkall til landsins. | Samkvæmt Ákvörðun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1244 var Kósovó sett undir tímabundna stjórn Sameinuðu þjóðanna árið 1999. Kósovó lýsti yfir sjálfstæði árið 2008 og hefur verið viðurkennt af 112 aðildarríkjum Sþ og Lýðveldinu Kína, en 18 aðildarríki hafa dregið viðurkenningu sína til baka. Serbía gerir enn tilkall til yfirráða yfir Kósovó. Önnur aðildarríki viðurkenna enn yfirráð Serbíu eða hafa ekki tekið afstöðu. Kósovó á aðild að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Heimsbankanum. Lýðveldið Kósovó ræður yfir megninu af landsvæðinu de facto, en með takmarkaða stjórn í norðurhlutanum. |
Niue | Aðili að fimm undirstofnunum Sþ | Engar | Niue er í frjálsu sambandi við Nýja-Sjáland og á í stjórnmálasambandi við 20 ríki. Niue er aðili að nokkrum undirstofnunum Sþ með fulla samningsaðild. Það deilir þjóðhöfðingja með Nýja-Sjálandi og er með nýsjálenskan ríkisborgararétt. |
Norður-Kýpur – Tyrkneska lýðveldið á Norður-Kýpur | Engin aðild | Kýpur gerir tilkall til landsins | Norður-Kýpur er aðeins viðurkennt af Tyrklandi. Það er áheyrnarríki í Samtökum um íslamska samvinnu og Efnahagssamstarfsráðinu sem „ríki Kýpur-Tyrkja“. Kýpur gerir tilkall til Norður-Kýpur. |
Sahrawi-lýðveldið | Engin aðild | Marokkó gerir tilkall til landsins. | Hefur verið viðurkennt af 84 aðildarríkjum Sþ, en 43 þeirra hafa dregið viðurkenningu sína til baka eða frestað henni. Stofnaðili að Afríkusambandinu. Marokkó gerir tilkall til alls landsins sem hluta af Suðurhéruðum Marokkó. Ríkisstjórn lýðveldisins er í útlegð í Alsír. |
Sómalíland – Lýðveldið Sómalíland | Engin aðild | Sómalía gerir tilkall til landsins. | Sómalíland er de facto sjálfstætt ríki. Það er ekki viðurkennt af neinu öðru ríki og Sómalía gerir tilkall til yfirráða þar. |
Suður-Ossetía – Lýðveldið Suður-Ossetía-Alaníuríki | Engin aðild | Georgía gerir tilkall til landsins. | Suður-Ossetía er de facto sjálfstætt ríki. Það er aðeins viðurkennt af Rússlandi, Níkaragva, Naúrú, Sýrlandi, Venesúela, Abkasíu og Transnistríu. Georgía gerir tilkall til landsins fyrir hönd tímabundinnar héraðsstjórnar Suður-Ossetíu. |
Taívan - Lýðveldið Kína | Engin aðild, en var áður aðili til 1971 | Alþýðulýðveldið Kína gerir tilkall til landsins. | Keppir að nafninu til um yfirráð yfir öllu Kína sem réttmæt stjórn landsins frá 1949. Lýðveldið Kína fer með stjórn eyjunnar Taívan og nærliggjandi eyja, Quemoy, Matsu, Prataeyja og hluta Spratly-eyja. Það hefur ekki gefið eftir tilkall sitt til meginlands Kína. 13 aðildarríki Sþ viðurkenna Lýðveldið Kína, og ekkert þeirra viðurkennir Alþýðulýðveldið Kína. Eitt aðildarríki (Bútan) hefur ekki tekið afstöðu hvort ríkið það viðurkennir.
Alþýðulýðveldið Kína gerir tilkall til alls lands sem Lýðveldið ræður yfir. Lýðveldið á aðild að mörgum alþjóðlegum stofnunum undir ýmsum gervinöfnum, oftast sem „Kínverska Taípei“. Það er fullgildur meðlimur í Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Lýðveldið var stofnaðili að Sameinuðu þjóðunum og átti aðild að þeim frá 1945 til 1971, með neitunarvald í öryggisráðinu. |
Transnistría – Pridnestrovíska moldavíska lýðveldið | Engin aðild | Moldóva gerir tilkall til landsins. | Transnistría er de facto sjálfstætt ríki, en nýtur aðeins viðurkenningar Abkasíu og Suður-Ossetíu. Moldóva gerir tilkall til landsins. |
↑ Önnur ríki ↑ | |||
Staða innan Sameinuðu þjóðanna Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna
Áheyrnarríki Sameinuðu þjóðanna
Aðilar að undirstofnun Sameinuðu þjóðanna
Engin aðild að Sameinuðu þjóðunum
|
Átök um fullveldi Óumdeilt fullveldi
Umdeilt fullveldi
|