Sextus Aurelius Propertius (fæddur á milli 50 og 45 f.Kr., dáinn um 15 f.Kr.) var rómverskt skáld.
Líkt og Virgill og Ovidius var Propertius í hópi þeirra skálda sem nutu stuðnings auðmannsins Gaiusar Maecenasar. Propertius var náinn vinur Ovidiusar og varði mestallri ævinni í Róm. Lítið annað er vitað með vissu um ævi hans.
Af verkum Propertiusar eru varðveittar fjórar bækur af kvæðum undir elegískum hætti.
Fyrsta prentaða útgáfan af kvæðum Propertiusar kom út í Feneyjum árið 1472.
Fyrirmynd greinarinnar var „Propertius“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 30. október 2005.