Rafmynt

Rafmynt (eða rafeyrir) er rafræn greiðslumynt sem þróuð hefur verið til greiðslumiðlunar og viðskipta á netinu.

Orðið getur vísað til nokkurra mismunandi hluta eins og:

  • Dreifðra rafmynta á við Bitcoin þar sem enginn miðlægur gagnagrunnur er til, þess í stað sammælast mismunandi tölvur um hver eigi hvaða pening t.d. með því að keppast við að leysa tímafrekar stærðfræðiformúlur, eftir á er hægt er að sanna hver sé réttmætur eigandi vegna þess að dulkóðun er notuð.
  • Sýndarrafmyntar sem er notuð í tölvuleikjum á við Eve Online.
  • Ríkisgjaldmiðils sem geymdur er í gagnagrunni, frekar en sem efnislegir seðlar eða myntir.

Samkvæmt íslenskum lögum er útgáfa rafmyntar aðeins heimil rafeyrisfyrirtækjum, fjármálafyrirtækjum með viðeigandi starfsleyfi, Seðlabanka Evrópu (ECB) og stjórnvöldum.

Tilvísanir

  1. „Hvernig virkar bitcoin og aðrar rafmyntir?“. Vísindavefurinn.
  2. Rafeyrir, Vísbending, 9. tölublað (06.03.1998), Blaðsíða 4
  3. 3,0 3,1 „37/2002: Lög um rafeyrisfyrirtæki“. Alþingi.
  4. Fjármálainnviðir 2013 (Seðlabanki Íslands)