Styrjuætt | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Acipenser sturio Linnaeus
| ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Undirættir | ||||||||||||
|
Styrjuætt (fræðiheiti: Acipenseridae) er ætt styrja. Samtals eru 25 tegundir í þessari ætt.
Fiskar af þessari ætt eru tíðast mjög stórvaxnir, rennilegir, svipaðir háfiskum í vexti, með stóran skásporð og 5 raðir af beinplötum eftir endilöngum bol og stirtlu: 1 eftir miðju baki, 2 á hliðum og 2 á kviði. Höfuðið er þakið beinplötum að ofan og á hliðum, en höfuðkúpan er úr brjóski; það er dregið fram í langa, sívala eða flata trjónu, en munnurinn er neðan á því aftanverðu; hann er lítill eða miðlungsstór með mjúkum "vörum", útskjótanlegur og tannlaus. Fyrir framan munninn eru 4 skeggþræðir í þverröð. Augun eru smá, en nasirnar víðar og rétt fyrir framan þau. Tálknin eru 4 hvorum megin og vel þroskuð tælkni innan á tálknalokum. Gelgjur eru engar og gelgjubörðin eru gróin við lífoddann. Kvíðuggarnir eru aftast á kvíðnum og bakugginn er einn, en allir uggar eru vel þroskaðir, einkum sporðurinn og á framrönd stöku ugganna eru randplötur. Uggageislarnir eru linir liðgeislar, nema ysti eyruggageislinn, sem er harður og liðalaus. Sundmaginn er stór, með loftgöng inn í ofanvert kokið.
Það eru aðeins 4 ættkvíslir í þessari ætt: