Þjóðargrafreiturinn á Þingvöllum var vígður þetta ár.
Eldey var friðuð.
Winston Churchill með hjálm, búinn undir loftárás.
Hestur í Lascaux-hellunum .
Margrét Þórhildur Danadrottning.
John Lennon .
Árið 1940 (MCMXL í rómverskum tölum )
Á Íslandi
Fædd
11. janúar - Örn Steinsen , íslenskur knattspyrnumaður og þjálfari (d. 2022 )
5. febrúar - Jónas Kristjánsson , íslenskur blaðamaður og ritstjóri (d. 2018 )
11. febrúar - Kári Jónasson , blaðamaður og ritstjóri.
20. mars - Valgarður Egilsson , íslenskur læknir og skáld (d. 2018)
22. ágúst - Jón Kr. Ólafsson , söngvari á Bíldudal.
31. ágúst - Jóhannes Jónsson , athafnamaður, kenndur við Bónus. (d. 2013 )
16. september - Ómar Ragnarsson , fjölmiðlamaður.
31. október - Pétur Einarsson , leikari.
31. október - Róska , listakona (d. 1996 ).
11. desember - Fríða Á. Sigurðardóttir , rithöfundur (d. 2010 ).
Dáin
Erlendis
7. febrúar - Teiknimyndin Gosi var frumsýnd.
22. febrúar - 5 ára drengur, Tenzin Gyatso , var skipaður sem trúarleiðtogi Tíbeta; Dalaí Lama .
12. mars - Finnska vetrarstríðinu lauk með friðarsamningum í Moskvu.
9. apríl - Þjóðverjar hernámu Danmörku og gerðu innrás í Noreg . Vidkun Quisling lýsti því yfir að ríkisstjórn Noregs hefði flúið og hann tæki sjálfur við sem forsætisráðherra.
Apríl- maí - Katyn-fjöldamorðin : Sovétmenn myrtu 22.000 Pólverja í Katyn-skógi í Póllandi, skammt frá Smolensk ..
12. apríl - Bretar hernámu Færeyjar .
10. maí - Þjóðverjar réðust inn í Holland , Belgíu og Frakkland . (Sjá Orrustan um Frakkland )
13. maí - Winston Churchill hélt ræðu í breska þinginu og sagði þar: „Ég hef ekkert að bjóða ykkur nema blóð, svita og tár.“
15. maí - Hollendingar gáfust upp.
15. maí - Fyrsti McDonald's-veitingastaðurinn var opnaður í San Bernardino í Kaliforníu .
17. maí - Brussel féll í hendur Þjóðverja.
20. maí - Auschwitz-útrýmingarbúðirnar voru opnaðar.
26. maí – 4. júní - Orrustan um Dunkerque milli Þjóðverja annars vegar og Breta og Frakka hins vegar.
28. maí - Belgar gáfust upp.
7. júní - Hákon 7. Noregskonungur, Ólafur krónprins og norska ríkisstjórnin fóru frá Tromsø og dvöldust í útlegð í London til stríðsloka.
10. júní - Ítalir sögðu Frökkum og Bretum stríð á hendur.
10. júní - Norðmenn gáfust upp.
17. júní - Sovéski herinn réðist inn í Eistland , Lettland og Litháen .
21. júní - Frakkar gáfust upp fyrir Þjóðverjum .
1. júlí - Tacoma Narrows-brúin ein stærsta hengibrú heims opnaði. Hún hrundi í nóvember sama ár.
3. júlí - Bretar sökktu frönskum herskipum við Marokkó til að au myndu ekki falla í hendur Þjóðverja.
10. júlí -
3. ágúst til 6. ágúst - Eistland , Lettland og Litháen innlimuð í Sovétríkin .
25. ágúst - Breski flugherinn gerði loftárásir á Berlín .
7. september - Þýskar sprengjuflugvélar fóru að láta sprengjum rigna yfir London . Öflugar sprengjuárásir voru gerðar 57 nætur í röð.
9. september - Ítalía réðst inn í Egyptaland frá Líbýu.
12. september - Nokkur frönsk ungmenni uppgötvuðu 17.000 ára gömul hellamálverk í Lascaux-hellum .
25. september - Nasistar skipuðu Norðmanninn Vidkun Quisling , sem var hallur undir Nasista, í stjórn í Noregi.
október til nóvember - Varsjárgettóið myndaðist.
28. október - Ítalir réðust inn í Grikkland en mættu harðri mótspyrnu.
5. nóvember - Forsetakosningar í Bandaríkjunum fóru fram. Franklin D. Roosevelt sitjandi forseti vann og gegndi 3. forsetatímabili sínu.
13. nóvember - Disney-teiknimyndin Fantasía var frumsýnd í stereóhljóði.
14. nóvember - 500 þýskar sprengjuflugvélar réðust á Coventry í Englandi og lögðu borgina í rúst.
14. desember - Plútóníum var einangrað í rannsóknarstofu.
29. desember - 136 þýskar sprengjufluvélar gerðu sprengjuárásir á London í því sem kallað var Annar bruninn mikli í London (Lundúnabruninn mikli var 1666 ).
Vetrarólympíuleikarnir 1940 og Sumarólympíuleikarnir voru áætlaðir en fóru ekki fram.
Fædd
9. febrúar - J.M. Coetzee , suðurafrískur rithöfundur.
19. febrúar - Saparmyrat Nyýazow , forseti Túrkmenistan (d. 2006 ).
10. mars - Chuck Norris , bandarískur leikari.
26. mars - Nancy Pelosi , forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.
26. mars - James Caan , bandarískur leikari.
28. mars - Luis Cubilla , úrúgvæskur knattspyrnumaður og -þjálfari (d. 2013 ).
13. apríl - J.M.G. Le Clézio , franskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi.
16. apríl - Margrét Þórhildur , Danadrottning.
25. apríl - Al Pacino , bandarískur leikari.
26. apríl - Giorgio Moroder , ítalskt tónskáld.
24. maí - Joseph Brodsky , rússneskt skáld og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1996 ).
2. júní - Konstantín 2. Grikkjakonungur (d. 2023 ).
7. júní - Tom Jones , velskur söngvari.
7. júlí - Ringo Starr , breskur trommuleikari og meðlimur Bítlanna .
29. júlí - Ole Lund Kirkegaard , danskur rithöfundur (d. 1979 ).
9. október - John Lennon , breskur tónlistarmaður og meðlimur Bítlanna (d. 1980 ).
14. október - Cliff Richard , breskur söngvari.
23. október - Pelé , brasilískur knattspyrnumaður.
22. nóvember - Terry Gilliam , bandarískur kvikmyndaleikstjóri og meðlimur Monty Python .
1. desember - Richard Pryor , bandarískur gamanleikari og uppistandari.
16. desember - Juan Carreño , mexíkóskur knattspyrnumaður (f. 1909 ).
21. desember - Frank Zappa , bandarískur tónlistarmaður (d. 1993 ).
Dáin