Albanska

Albanska
Shqip
Málsvæði Albanía, Kosóvó, Grikkland, Makedónía, Svartfjallaland
Heimshluti Balkanskaginn
Fjöldi málhafa 6.000.000
Ætt Indóevrópskt

 Albanska

Skrifletur Latneskt stafróf
Opinber staða
Opinbert
tungumál
Albanía
Kosóvó
Norður-Makedónía
Tungumálakóðar
ISO 639-1 sq
ISO 639-2 alb
SIL SQI
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Albanska (Shqip) er tungumál sem talað er í Albaníu, en einnig í Kosóvó, Grikklandi og Norður-Makedóníu. Málnotendur eru um 6 milljónir. Greinist í 2 megin mállýskur; norður (geg) og suður (tosk), en þessar tvær greinast aftur í margar undirmállýskur sem illa skiljast sín á milli. Elstu textar frá 15. öld. Þrjú málfræðileg kyn. Óákveðni greinirinn er undansettur en sá ákveðni eftirskeyttur. Nafnorð hafa 6 föll og í sumum mállýskunum 7. Nafnorð eru sett í fleirtölu með annars vegar sjö eftirskeytum (-ë, -a,-e, -ër, -ra -t, -nj) og hins vegar þremur stofn-breytingum þar sem -a er skipt út fyrir -e, -k fyrir -q og -g fyrir gj. Lýsingarorð venjulega eftirsett líkt og í rómönskum málum og beygjast eftir kyni og tölu en ekki falli. Í spurnarsetningum er ekki snúið við orðaröð, heldur er smáorðið a sett framan við setninguna, sem verður við það að spurningu. Einu stafirnir í albanska stafrófinu sem ekki er að finna í því enska er setillu-sé og tvípunkts-e. 40 % orðaforðans tökuorð frá latínu. Ennfremur þúsundvís af tökuorðum frá tyrknesku enda albanir undirsátar tyrkjaveldis um aldir.

Nokkrar setningar og orð

Fyrstu töluorðin eru: një, dy, tre, katër, pesë, gjashtë, shtatë, tetë, nëntë, dhjetë. —

Shqip Íslenska
Tungjatjeta Halló
Mirëdita Góðan dag
Si jeni? Hvað segirðu gott?
Mirë Ég segi allt gott
Falemenderit shumë Takk
Po
Jo Nei
A flisni islandisht? Talarðu íslensku?
Flas vetëm pak Shqip Ég tala bara smá albönsku
Wikipedia
Wikipedia
Wikipedia: Albanska, frjálsa alfræðiritið

Tenglar

Albansk tungumál
Indóevrópsk tungumál
Albanska | Arvaníska | Tósk
  Þessi tungumálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.