Karlsbrúin er einkennisbygging borgarinnar í Prag í Tékklandi. Hún er elsta nústandandi brú yfir fljótið Moldá og ein elsta steinbrú Evrópu. Brúin tengir miðborgina við kastalahæðina (Hradžin) og er gífurlega vinsæl meðal ferðamanna.
Fyrstu heimildir um brú á þessum stað eru frá 10. öld og er þá um trébrú að ræða. Hún eyðilagðist í flóði 1157 eða 58. Fyrsta steinbrúin var smíðuð á staðnum milli 1158 og 1170 og hét Júdítbrúin (Juditin most). Brúin skartaði turnum við sitthvort endann. En 1342 skemmdist hún í miklu flóði, ásamt öðrum turninum (austurturninum). Allt sem eftir stóð var vesturturninn og örfáir brúarsporðar í Moldá.
Verkframkvæmdir nýju brúarinnar hófust 9. júní 1357. Það var Karl IV keisari (og konungur Bæheims) sem lagði fyrsta steininn kl. 5:31. Þegar dags- og tímasetningin eru tölusett kemur út 1-3-5-7-9-7-5-3-1. Óvíst er hver arkítekt brúarinnar var en framkvæmdum stjórnaði Þjóðverjinn Peter Parler. Fyrirmyndin var steinbrúin í Regensburg í Bæjaralandi. Karlsbrúin var 516 m löng og 10 m breið. Yfir ána voru settir 16 steinbogar. Nýr turn var reistur á austurbakkanum, en báðir turnar voru með hliði sem vegfarendur urðu að fara í gegnum. Framkvæmdum lauk 1402 og hlaut brúin heitið Steinbrúin (Kamenný most) eða Pragbrúin (Pražský most). Brúin var gríðarlega mikil samgöngubót fyrir Prag, enda var Pragbrúin eina brúin yfir Moldá. Varðliðar voru settir hvor við sinn endann (Krossherrar með rauðu stjörnuna) sem stjórnuðu umferð um brúna.
Fyrstu skemmdir á brúnni urðu 1432 af völdum flóða. Meðan 30 ára stríðið geysaði á 17. öld tóku Svíar vestari brúarendann. Miklir bardagar urðu á brúnni sjálfri er þeir reyndu að komast yfir á austurbakkann. Þessu fylgdu miklar skemmdir. Mestu breytingar sem gerðar voru á brúnni fóru fram um aldamótin 1700. Þá voru 30 stórar styttur reistar á brúnni, 15 hvorum megin við handriðið. 1870 fóru formleg nafnskipti fram en framvegis hét hún Karlsbrúin (Karlův most) eftir Karl IV keisara. 1872/74 skemmdust fimm brúarsporðar vegna íss í Moldá. 1883 var byrjað að hleypa strætisvagni dreginn af hestum yfir brúna. 1890 rákust trjádrumbar í flóði á brúarsporða og eyðilögðu þá. Þrjú gólf hrundu. Viðgerðir tóku tvö ár. 1905 hóf sporvagn að ganga yfir brúna en hann var leystur af af reglulegum strætisvögnum þremur árum síðar. Karlsbrúin slapp við skemmdir í heimstyrjöldunum báðum á 20. öld. Milli 1965-78 fór fram viðamikil viðhaldsvinna á brúnni. Þegar henni lauk var lokað á alla vélknúna umferð um brúna. Eftirleiðis var Karlsbrúin eingöngu opin fyrir fótgangandi vegfarendur. Síðast var unnið að viðhaldi á brúnni 2007 – 2011. Í það skiptið hlaut vinnan mikla gagnrýni þar sem verktakafyrirtækið uppfyllti ekki hæfniskröfur. Mistök voru gerði í vinnunni, sem leiddi til þess húsfriðunarnefnd sektaði borgina um 130 þúsund evrur. Heimsminjaskrá UNESCO rannsakaði málið sömuleiðis, enda brúin á heimsminjaskránni. Borgarahreyfing stóð fyrir undirskriftum um að leyfa brúnni að vera eins og hún var áður en vinnan hófst. Í nóvember 2011 var rafmagnsluktunum breytt, þannig að núna eru þær gasluktir.
Turninn við austurenda Karlsbrúarinnar, við gömlu borgina (Stare Mesto) reis 1370-80 og er í gotneskum stíl. Hann hefur staðið nær óbreyttur í gegnum aldirnar til dagsins í dag. Á turninum eru tvö skjaldarmerki, eitt af keisara þýska ríkisins og eitt af konungi Bæheims. Auk þess eru tvær stórar styttur, ein af Karli IV keisara og hin af Wenzel IV son hans. Ofar eru styttur af heilögum Aðalberti og heilögum Sigmundi. Allt þetta skraut er á austurhlið turnsins (sem snýr að miðborginni). Á vesturhliðinni er nær ekkert, enda eyðilagðist allt er Svíar börðust um brúna í lok 30. ára stríðsins. Eftir að mótmælendur hentu fulltrúum keisarans út um glugga á konungshöllinni 1618, voru þeir handteknir og hálshöggnir. Höfuð þeirra voru fest upp á austurturninn og fengu að hanga þar í heil tíu ár, frá 1621-31. Turninn er opinn almeningi en efst er útsýnispallur.
Vesturturninn stendur við borgarhverfið Malá Strana fyrir neðan kastalahæðina. Turninn var smíðaður samtímis Júdítbrúnni, um miðja 12. öld. Meðan Karlsbrúin var í byggingu var honum óverulega breytt en hann er í rómönskum stíl. 1591 var honum breytt í endurreisnarstíl. Turn þessi er talsvert minni en vesturturninn og ekki eins veglega skreyttur. Svíar náðu valdi yfir turninum í lok 30 ára stríðsins og skemmdist hann nokkuð í bardögum.
30 styttur eru á brúargólfi Karlsbrúarinnar, 15 sitthvoru megin. Þær eru aðallega af dýrlingum. Upphaflega var engin stytta á brúnni þegar hún var tekin í notkun 1402. Árið 1629 var kross reistur en fyrstu stytturnar voru settar á 1707. Eftir það var styttum hægt og hægt bætt við þar til þær voru orðnar 30 að tölu. Þegar viðgerðarvinna var í gangi 1965 – 1978 var öllum styttum komið fyrir í þjóðarsafninu í Prag en eftirmyndir settar upp í staðin.
Stytturnar 15 á suðurhlið, frá austri (miðborg) til vesturs (að kastala):
Stytturnar 15 á norðurhlið, frá austri (miðborg) til vesturs (að kastala):