Sebrahestar (einnig kallaðir sebradýr) eru hófdýr og grasbítar af hestaætt. Helsta einkenni þeirra eru ljósar og dökkar rendur sem þekja allan skrokkinn. Sebrahestar eru algengastir um miðbik Afríku og í henni austanverðri og sunnanverðri, einkum á gresjum, en sumir sebrahestar lifa þó í fjalllendi.
Tegundir sebrahesta
Nú finnast þrjár tegundir af sebrahestum:
Greifasebri (Equus grevyi)
Greifasebrar eru stærstu sebrahestarnir, nálægt 150 sentimetrar á herðakamb og 400 kíló á þyngd. Þeir finnast einkum í Kenía. Þeir þola vel þurrt loftslag.
Fjallasebri (Equus zebra)
Þessi tegund skiptist í tvær deilitegundir: Höfðasebri (Equus zebra zebra) er lágvaxinn og fáséður. Hartmannssebri (Equus zebra hartmanni) er stærri og nokkru algengari.
Sléttusebri (Equus burchelli)
Sléttusebrinn heldur sig á sléttum í austanverðri Afríku, frá Súdan í norðri og allt til Suður-Afríku. Hann er á stærð við smávaxinn hest. Ljón veiða oft sléttusebra.
Fáeinar aðrar tegundir af sebrahestum eru útdauðar. Mest er vitað um þessa:
Kvaggi (Equus quagga)
Kvaggar voru nokkuð frábrugðnir öðrum sebrahestum og útbreiddir um alla Suður-Afríku. Á ofanverðri 19. öld liðu þeir undir lok, mest vegna ofveiði. Reynt hefur verið með kynbótum að endurgera þetta dýr, en árangur er umdeildur.
Rendurnar á sebrahestum
Því er haldið fram, að engir tveir sebrahestar hafi nákvæmlega eins rendur. Þær hafa orðið mörgum umhugsunarefni. Þrjár kenningar hafa einkum verið settar fram um gagnsemi þess fyrir sebrahesta að hafa rendurnar:
Þær gegni félagslegu hlutverki og auðveldi þeim að þekkja einstök dýr í hópnum.
Þær rugli hættulegar mýflugur, svo að þær stingi ekki.
Ýmislegt
Sebrahestur getur náð 55 kílómetra hraða á klukkustund, þegar hann sprettir úr spori. Hann þykir þrekmikill og úthaldsgóður.
Ekki er útilokað að temja sebrahesta, en fáum hefur tekist það, því að þeir eru að eðlisfari styggir og bregðast á svipstundu við öllu áreiti.
Sebrahestur og hryssa af venjulegu hestakyni geta átt afkvæmi saman. Það geta sebrahestur og asna einnig gert (sebraasni). Hvort tveggja er mjög óalgengt úti í náttúrunni en getur gerst í dýragörðum eða með beinni ræktun. Slíkir blendingar eru viðráðanlegri til notkunar en sebrahestar.
Sebrahestar í dýragörðum geta orðið fertugir að aldri.